Ryðst hér inn vesæll nýliðinn með leik sem reynst getur þraut hin mesta, hinum virðingarmeiri og háttsettari til dægradvalar.
Leikurinn er einfaldur, og snýst um það að:
A) Ég gef hér upp hina Engilsaxnesku þýðingu á hinu íslensk-ættaða alþýðunafni "Róbert",eða "Robert".
B) Tilgangur leiksins er að athuga hversu marga kunna einstaklinga sem heita þessu nafni við getum fundið og
C) skal það stafað NÁKVÆMLEGA eins og gert var hér að ofan og á þessu engar undantekningar gefnar.
D) Ef viðkomandi er ekkert mjög þekktur er rétt að láta fylgja með stutta áminningu á hvers vegna við skyldum þekkja viðkomandi.
E) Viðkomandi má vera þekktur úr öllum hópum en varla þarf að taka það fram að íþróttamenn eru hér undanskildir enda auðvelt að færa rök fyrir að þar sé ekki um menn að ræða,heldur skepnur (nema náttúrulega vera skyldi hinn verðandi forseti lýðveldisins Árni Gautur Arason en það ætti ekki að koma að sök,þar sem hann heitir að afar takmörkuðu leyti Robert).
Ekki er heldur æskilegt að nefna hér kvenmenn til sögunnar.. Starir þegjandi út í loftið
„Látið leikana hefjast.....!" Ljómar upp
Vígslu-Robertinn er.....
Robert De Niro, leikari
Mér dettur nú bara enginn annar í hug, nema:
Róbert G. Róbertsson, skrúðgarðyrkjumeistari
Því miður. Beðið er um engilsaxnesku útgáfuna. Lítur út fyrir að ég verði sigurvergari í þessum leik eftir töluvert minni mótspyrnu en við var búist... Starir þegjandi út í loftið Til að sýna yfirburði mína og snilli nefni ég Robert Ludlum,rithöfund.
P.s. Þakka samt þáttökuna,Tinni minn. Reyndu endilega aftur...... og til hamingju með afmælið um daginn.
Robert Zimmermann...þarf nokkuð að orðlengja það, einnig gengur hann undir heitinu Bob Dylan
Róbert Dé Níró!
Robert Downey, jr., leikari
Og ábyggilega pabbi hans líka .... Starir þegjandi út í loftið
Robert Redford
Robert Duvall.....Greini ég nokkurn trega ykkar yfir að hafa ekki munað eftir honum
Róbert Dé Níró!
Því miður..Hann var búinn Brestur í óstöðvandi grát
Robert Hübner