Íííííííhaaaaaaa
Stekkur hátt í loft upp en í stað þess að lenda í lauginni skellur ofan á einum ellilífeyrisdansaranum og drepur hann
ó æ æ
Voruð þið nokkuð að nota þetta? Danglar lauslega í líkið með vinstri fæti
hleypur á ofsahraða í átt að lauginni og býr sig undir að stökkva þegar... Helvíti bara... ég gleymdi að fara í sundskýlu snýr við á punktinum og brunar inn í sundskýlu. Kemur út aftur á sama ofsahraðanum og nú í sundskýlu sem er með áprentuðum brúnum blett aftan á og gulum blett framan á. HÉR KEM ÉG Stekkur hæð sína og steypist beinustu leið ofan í grunnu laugina. Stendur upp vankaður en glaður
Halló?
Eru allir farnir uppúr?
Skimar í kringum sig og lagar sundhettuna
Nei ég er að koma aftur, var að losa mig við þetta ellilífeyrisþegalík.
Hva, herra Sívertsen, þér bara mættir!
Viljiði hætta að drepa þessi ellilífeyrisdýr! Ég þarf að skila þeim eftir að búið er að nota þá. Ætlar þú að borga þessar 500 krónur sem þarf að borga ef maður skilar þeim ekki aftur?
Blótar herfilega
það var komin tími á að leggjast í bleyti... Fári minn, gaman að sjá þig hér... þú breytist allur við að blotna. Stynur ógurlega og lokar augunum
Jæja, þá er ég mættur, afsakið hvað ég er seinn á ferðinni, það tók mig nokkra stund að koma mér í vaðmáls sundklæðnaðinn minn, auk þess sem ég hef það fyrir reglu að maka mig ávallt Lýsi áður en ég leggst til sunds Tekur nokkrar Mueller æfingar og stingur sér svo fram af brúnni
Jæja, þá er kominn tími til að hreinsa laugina. Horfir illilega á Glúm
hvað er þetta... lýsi er barasta hollt... við skolum þetta líka af okkur í sturtunni. Einhver með í gufu?
ég vippar handklæðinu af sér
Ívar hendist af stað og dregur með sér keisarann. Þeir stefna beint á gufubaðið. Þeir opna og fara inn. Þar er enginn. Þeir setjast niður og Ívar tekur upp Ákavítisflösku. Hann fær sér sopa og býður keisaranum: Viltu?
Kemur inn í gufuna skellihlægjandi eftir að hafa drekkt þremur sundlaugargestum sem höfðu ekki lesið þjóðsögurnar og fóru á bak Nykri í fávisku sinni. Heyrði ég einhvern segja ákavíti?
fáðu þér réttir nykri flöskuna og stynur þægindastunu
Sleikir lýsisborið bak Glúms og skellir svo í sig góðum slurk af ákavíti.
þrífur upp aðra ákavítisflösku og þambar úr henni