Herbjörn, viltu svo segja mér hvað í hlandbölvuðum andskota hefur komið út úr ykkar sóðakjömmum, annað en nöldur, kvart og kvein?
Hana nú, þá er hann kominn uppá háa C-ið. Ég þarf ekkert að vera að tíunda innihald innleggja okkar í stjórnarandstöðunni. Lestu þau bara aftur og betur og þú munt sjá að þau eru byggð á skarpri rökhugsun item málefnalegum ígrundunum.
hvað í glamurgeislandi djöfulgang ert þú að tala um apinn þinn!?
Nú held ég að þú ættir að biðja hann Skabba að skenkja þér smá ákavítislögg í glas til að róa þig niður. Það er engum hollt að leggjast til svefns argur og önugur.
opnar ákavítisflösku, hellir í glas og rennir því yfir til Herbjarnar en sturtar afgangnum af flöskunni í sig Já... fyrirgefðu mér, svona eiga keisarar ekki að láta. Kannski að maður fari að...deyr áfengisdauða
uppgötvar sóðalegar hugsanir og yfirgefur sjálfan sig
Strákar mínir. Þið eruð orðnir heldur glaðir í þetta ákavíti. Gott gott.
Vatn lífsins eins og einhver sagði. . . Starir þegjandi út í loftið
Laukrétt...Ákavíti = Aqua Vite = Vatn lífsins...
Er þetta ekki merkilegt?
bíður eftir svari
Þetta er alveg allsvakalegt og ótrúlega óaðfinnanlegt
GEGGJAÐ!
Ég drekk yfirleitt blóðvatn og geitasaft.
Er hægt að fá að sinna einhverju hræðilegu á vegum Baggalútíu. Svona eins og hafa yfirumsjón yfir skipulagða glæpastarfsemi sem Ríkisstjórn veit af og jafnvel hagnast á? Ég fengi þó að ráðsgast við minnipokamenn af eigin illgirni og geðþótta
Drekkur latté og fylgist grannt með stjórnarandstöðunni...
Ég drekk yfirleitt blóðvatn og geitasaft.
Er hægt að fá að sinna einhverju hræðilegu á vegum Baggalútíu. Svona eins og hafa yfirumsjón yfir skipulagða glæpastarfsemi sem Ríkisstjórn veit af og jafnvel hagnast á? Ég fengi þó að ráðsgast við minnipokamenn af eigin illgirni og geðþótta
Ég er nú reyndar ráðherra fólskumálaráðuneytisins en það hefur að gera með óskipulagða glæpastarfsemi og almenna varmennsku. Einnig tek ég þátt í að halda fólki í skefjum og berja niður andstöðu erlendis.
Ég legg aftur á móti til að við förum eftir Ítalska kerfinu og þá getur þú orðið Don Skeletoro og séð um Mafíuna sem myndi þá hafa sterk tengsl við ríkisstjórnina.
hvað með sölu aflátsbréfa?
Eins og Fuggerarnir í byrjun 16. aldar?
já maður, við þurfum ekki að búast við öðrum Martein Lúther, allir menn með svoleiðis hyggjuvit eru löngu dauðir.
Nefnd sem ég skipaði hefur komist að þeirri niðurstöðu að sala aflátsbréfa væri ágætis hugmynd og myndi borga upp partí ríkisstjórnarinnar næstu árin.
Ég...nei..nefndin meina ég leggur til að þjókirkjan sé lögð af og nýtt fjölgyðiskerfi yrði tekið upp. Ekki með gömlu ásunum heldur með ríkisstjórninni í aðalhlutverki. Persónu- og foringjadýrkun er hvort eð er svo mikil í Baggalútía að við erum þegar hálfguðir. Látum plebbana tilbiðja okkur og byggjum hof okkur til heiðurs. Þegar það hefur verið gert bíðum við bara eftir því að páfinn deyi drottni sínum og þegar það gerist tökum við bara yfir sem guðir yfir hinum siðmenntaða heimi.
Allar þjóðir munu dýrka okkur, sem myndi í sjálfu sér veita okkur jafn mikið vald og páfinn hafði hérna sautjánhundruð-og-súrkál.
Veröldin verður okkar!