Hvað með tvöfalt þjóðerni, Baggar og Lútar ?
Sé ekki hvaða máli skipti hvað pöpullinn vill láta kalla sig. Ég kalla þá "þegna, þræla, ambáttir, húskarla eða andspyrnu" Hvað þau kalla hvort annað innbyrðis kæri ég mig kollóttan um enda allt of almúgalegt að velta sér upp úr slíku, svo ég tali nú ekki um hvað það er eitthvað "í gær".
Ástæða þessarar hugmyndar er að þá er hægt að setja reglur sem eru mismunandi fyrir mismunandi hópa. T.d. mættu Baggar bara fara í ÁTVB á mánudögum en Lútar bara á þriðjudögum og hliðstætt fyrir fleiri stofnanir. Þetta myndi duga vel til álagsjöfnunar.
Ástæða þessarar hugmyndar er að þá er hægt að setja reglur sem eru mismunandi. T.d. mættu Baggar bara fara í ÁTVB á mánudögum en Lútar bara á þriðjudögum og hliðstætt fyrir fleiri stofnanir. Þetta myndi duga vel til álagsjöfnunar.
Er þá ekki bara best að gefa þeim bara númer, það brýtur hraðar niður alla sjálfsvitund og gerir þá mun meðfærilegri Ljómar upp
Er þá ekki bara best að gefa þeim bara númer, það brýtur hraðar niður alla sjálfsvitund og gerir þá mun meðfærilegri Ljómar upp
Þarna kom góð hugmynd. Eyðum öllum nöfnum úr þjóðskránni og höfum ávallt samband við fólk með því að nota kennitölur þess. Þ.e. þegar kemur að þvi að senda skatteyðublöð og reikninga til fólks, þá stendur ekki nafn framan á póstinum, heldur bara kennitalan.
Slíkt myndi brjóta þá fljótt niður og um leið og ný kynslóð kemst inn í þjóðfélagið þá verður þetta orðið að eðlilegum hlut. Og svo er náttúrulega líka hægt að sleppa þessum silkihönskum sem ég tala um og koma þessu á með fólsku og harðræði. Slíkt er ávallt möguleiki, og skemmtilegt þar að auki.
"Auglýsing: 230998-2429 mun syngja í 3034, bar 041192-3449, í kvöld, 18.02.2025. Undirleikarar verða 140871-2999 og 291169, og bakraddir 080494-2679, 010995-2769 og 170197-3359."
Barnakór með örlítið eldri undirleikurum, sýnist mér.
Barnakór með örlítið eldri undirleikurum, sýnist mér.
Þarna hljópstu fram af þér, Haraldur hárfagri. Ég sagði skýrt og greinilega; ,,þegar ný kynslóð vex úr grasi." Þetta er semsagt auglýsing úr framtíðinni.
Fengum við einhverntímann niðurstöðu útúr þessum 5 síðna umræðum?
Ég legg til að við séum ekkert að ákveða neitt , köllum okkur bara það sem við viljum.
Ég legg til að við séum ekkert að ákveða neitt , köllum okkur bara það sem við viljum.
Frjálshyggja? Hvur fjárinn? Ég vill bara ákveðið opinbert þjóðerni fyrir bjúrókratann og íhaldsmanninn í mér, og svo getum við kallað okkur það sem við viljum.
sötrar græna hanann
Við, það sem við viljum, erum það sem við viljum af því að við erum það sem við viljum. Bagglútíu hefur hlotnast það hnoss að hana byggir þjóðin það sem við viljum. Það sem við viljum höfum margsinnis reynt að henda aumingjunum út úr þinginu sameinuðu þjóðanna því það sem við viljum er eina réttkjörna þjóðin til setu þar. Þar hafið þið, það sem við viljum, það!
Ég er orðinn vanur því að kalla íbúana hér Bagglýtinga, en Baggalútar er alls ekki svo slæmt nafn á bagga þessa þjóðfélags sem reyndar lúta Baggalútíu í einu og öllu.
geyspar
það er kominn tími á að hætta að geyspa svona svakalega
Viltu að ég helli steypu upp í hann?
það væri e.t.v. ráð