en hversvegna er betra að hafa undirtökin í umræðum en ekki yfirtökin? Samt þykir gott að hafa yfirhöndina og er hægt að hafa undirhöndina í samskiptum?
en hversvegna er betra að hafa undirtökin í umræðum en ekki yfirtökin? Samt þykir gott að hafa yfirhöndina og er hægt að hafa undirhöndina í samskiptum?
Í sambandi við undirtökin... það gæti verið tengt því að taka undir eitthvað til að lyfta því, þú tekur ekki yfir eitthvað ef þú ætlar að lyfta því, aftur ef þú ætlar að taka yfir eitthvað þá ertu að hrifsa það til þín samanber yfirtökutilboð þau er maður heyrir um í viðskiptum daglega....
ætli yfirhöndin sé ekki komin úr glímu, þú hefur þá aðra höndina ofaná manninum og nærð þannig að koma á hann bragði, þar með hefurðu yfirhöndina...að sama skapi ætti þá að vera slæmt að hafa undirhöndina!!!! bara að fabúlera...en þetta er frekar áhugavert umræðuefni.
En varðandi yfir og undirmat þá hallast ég frekar að sorpfæði enda hata ég grænmeti...
Grænmeti er ekki matur, þú borðar ekkert sem er grænt, jafnvel þó að skarkoli sé brúnn, svartur eða grár! þú borðar ekkert sem er grænt!
Í engilsaxnesku er oft notað orðið "underhanded" sem táknar að vélabrögðum hafi verið beitt. Aftur á móti er ekkert talað um yfirhönd í engilsaxnesku þannig að ég hallast að því að þeir sem tali engilsaxnesku séu meira undirförulir (þarna er þetta aftur) en aðrir. Ekki geta þeir verið yfirförulir allaveganna.
Ef að andhverfa hittir andhverfu sýna þá stendur eftir bara alls ekki neitt, og hana nú.
Því má lýta svo á að allt sem ekkert er sé í raun samkomur andhverfa.
En þar sem eitthvað er fyrir eða til staðar geta engar andhverfur verið, nema að víðsfjarri séu.
nú stend ég alveg á gati,,, hver er útkoman eiginlega ?
Ef að andhverfa hittir andhverfu sýna þá stendur eftir bara alls ekki neitt, og hana nú.
Því má lýta svo á að allt sem ekkert er sé í raun samkomur andhverfa.
En þar sem eitthvað er fyrir eða til staðar geta engar andhverfur verið, nema að víðsfjarri séu.
Er þetta ekki lykillinn til að finna Hvergiland?
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Gefur nýliðanum Ákavíti fyrir að sýna sér þennan gamla þráð Skál... orðið andhverfa gæti einmitt þýtt eitthvað sem ekki hverfur... og eitthvað sem ekki hverfur ekki hverfur væri þá... eitthvað sem er til staðar... hmmm.... hvert er ég að fara... já til Hvergilands... pakkar niður kassa af Ákavíti og hverfur...
Tekur við Ákavítinu og sýpur af
Þetta er bráðgott.
Fyrst við erum komnir á snoðir um teorískar orsakir Hvergilands þá finnst mér við hæfi að vitna í einn Gestapóa sem ekki hefur farið mikið fyrir.
sjálfhverfa ands
Anarch hefur verið nánast hvergi síðan hann skráði, hefur bara þetta eina innlegg og hefur ekkert sést í langan langan tíma. Samt er þetta ansi hnyttið hjá honum.
Starir þegjandi út í loftið og veltir fyrir sér hvernig tekist hefur að tengja rafafmæli Anarchs eftir tvo daga við leitina að Hvergilandi og pælingar um andhverfur
Já.
hvarf hið sjálfa ekki?
Hvar er limbri þegar við þurfum fyllingu villings?
Hugsanlega er hans sjálfið spillt.