Brátt hefst útvarp Baggalútur á Rás 2. Ég óska Baggalútum til hamingju með þessa nýju landvinninga og vona ég að fleiri einstaklingar muni njóta þeirrar náðar að meðtaka sannleikann á þessari öld hinnar miklu blekkingar.
Brjótið löpp.
ég er að fara að sækja sparifötin úr hreinsun og veisluföngin verða tilbúin kl.5.En það er skrítið að þessi dagur skuli ekki vera allmennur frídagur Dettur í gólfið af undrun og fær svakakúlu á hnakkann
Ég hyggst fagna þessum merka áfanga með heljarinnar fylleríi. Það vill svo skemmtilega til að á morgun er frí í menntastofnun þeirri sem ég stunda.
Starir þegjandi út í loftið og íhugar hvað kaupa eigi í ríkinu
Svo er spurningin um að flagga við opinberar byggingar. Annað eins er nú gert á afmælinu hans Óla gr.s og dánardegi Jesú Jósepssonar.
Svo er spurningin um að flagga við opinberar byggingar. Annað eins er nú gert á afmælinu hans Óla gr.s og dánardegi Jesú Jósepssonar.
Því að láta staðar numið þar? Þetta er jú fyrst og síðast hátíðisdagur fyrir allan almenning og pöpullinn ætti því að sýna gleði sína í verki með því að draga þjóðfánann að húni í dag. Sjálf ætla ég að fagna deginum með því að klæða mig uppá, setja upp hárið og borða á besta veitingahúsi bæjarins. Sjáumst!
Ef minnið svíkur oss eigi þá er febrúar sá mánuður er prufukeyra á þjóðhátíð(armánuð) Baggalútíu og munum vér líta á þetta sem heppilegan upphafspunkt þeirra hátíðarhalda og fagna þessum tímamótum næstu vikurnar ásamt ýmsu öðru. Síðan má huga að því að ná algjörum yfirráðum yfir allri dagskrá RÚV í október nk.
Ég tel það ekki vera góða hugmynd fyrir forvígismenn Baggalútssamsteypunnar að fara að brjóta á sér lappirnar. Aftur á móti get ég veitt sérfræðiaðstoð í slíkum aðgerðum ef út í það er farið.
Stutt og laggott.
Þetta var frábært hjá ykkur strákar!
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Þetta voru bestu veðurfregnir sem vér höfum á ævi vorri heyrt.
Helvítis internet andskoti. Nú kaupi ég útvarp!
Er möguleiki að bagglútsmenn setji þáttinn á netið svo þeir sem eru með svo ömurlega internetstengingu að það nær ekki einföldum útvarpsútsendingum geti hlustað á það sem þeir hafa misst af.
Helvítis internet.
Verður þetta í anda þjóðarsálarinnar gömlu. Verður þá ekki heimavarnarliðið að hringja inn og kvarta yfir öllu mögulegu.
Ég vil þá byrja að kvarta fyrir því hvað sólin er lágt á lofti og vill oft blinda mann. Getur ríkisstjórnin ekki gert eiithvað í þessu svo sem látið upp skjólvegg eða skjóta uppí geim risastórri linsu sem mun draga úr birtu sólarinnar.???
<Gúlp...>
Þvílíkt PRRRRRRRRRRRRRRRRRUMP!!!!!!!!!!
missir andlitið og hleypur grátandi í burtu