Styttu þær mér stundirnar
stúlkurnar á Mímisbar
Ef tæpt var þeirra tíðarfar
tyllti ég mínum létt í þar
m.
HlewagastR heiðurskarl
hýsill mestu grana
í stein ei sestu stökujarl
um stól: fer best að ana-
l
Starir þegjandi út í loftið
Þennan ekki þekkti ég
þræði nú í hasti
er þá sagan ömurleg
enda fyrsta kasti-
ð
Fimm nú línur skrifa skal
skálkurinn hann Haldi.
Eins og það sé eitthvert val
að auka kommum valdi
-ð!
Fimmskeytlan er fyndin þraut
finnst mér best að prófa
Aukastafur stelur braut
stemming skítaþróa
-ð
.
[Er þetta í lagi]
aftanin er nokkuð grimm
angurvær sú böl
þverr loks hún er þurr og dimm
þannig var mitt kvöl
-d
Mis var skipt hér manna ferðum
margur dó á næsta hól
Sjúkdómar af svæsnum gerðum
Svona var þá Stóra ból
-a
Hvað er að gerast, hvert skal halda,
hví eru kveikt ljósin öll?
Síðast inni hjá Silla og Valda
sá ég plakat auglýsa böll
-in.
Frumraun nýgræðings:
Línur skulu leika fimm
ljóðið fylgir reglum
listin jafnan læðist grimm
lýstur svo niður þrum
u
Á þetta ekki að vera 7-6-7-6-1?
Fjölgyði er ferlegt puð
fyrir eyrum bænasuð
Til að minnka stress og stuð
ég stend hér einn og kalla á guð-
i
Af því jólin eru gúrkutíð, þá hlýtur að mega stela gömlum ferskeytlum og breyta í fimmskeytlur, er þaggi?
Bráðum koma blessuð jólin
börnin fara að hlakka til
Allir fá þá eitthvað fallegt
í það minnsta kerti – og spil-
a
Hér finnast margar fagrar hnátur
Kór: -> Feitabollur ekki <-
Gaura enga girnast skjátur
Kór: -> Subbugreddusekki
r <-
Þessi stendur alveg á fimmtu línunnar, en án hans væri þetta einungis aum ferskeytla (sem væri heldur of ódýr háttur).
Góðlega hann gefur kvæði
gestur fasti.
Helvíti með handa klæði
hlewagasti
R
Upp, upp og niður, inn, inn og út.
Eitthvað hlýtur að fullnægja yður frú?
Mannýgan tudda, mórauðan hrút,
mállausa önd eða fimm ára kú
t?
Það er kominn tími til að henda einni hérna inn. Tek undir með Hlégesti. Það er skaði ef þessi þráður týnist.
Vorið kemur víst ég hlæ
vonglaður í dag.
Blákornið og blómafræ
bæta munu hag-
a.
Áðan fékk mitt fjórða glas
fæ mér svo í aðra tá
nú er á mér nokkuð bras
að ná að finna bar og krá-
s
Þetta er þráður vikunnar að þessu sinni...
Í eldhúsinu drasl og dót
diskana ég set í þvol
Á höfði mínu hrat og sót
í hárið læt ég sápuskol-
p
Kanna ætti ókunn lönd,
aksturshæfnin þó sé smá.
Stýrðu þá með styrkri hönd
stefndu áfram beint á ská-
l.