Bévítans bókin er gauðrifin
Bjarni rúmið vætir
Roð og flissar eins og smáelpa
hver sem botnar þetta, svo að vel sé, hlýtur ævarandi virðingu mína (eða 13 kr. frímerki með branduglu, menn mega velja)
Aftur er ég orðinn úlfur,
óður góla ég á tungl.
Roðnar og flissar eins og smástelpa
Þú þín ekki gætir,
þegar ég verð hrifin.
-af þér
En Kambans næstum nafni kom hér inn og klauf út huga minn.
Aftur er ég orðinn úlfur,
óður góla ég á tungl.
Ekki á ég meira silfur
en í sjóðinn set mitt tungl
Blessaður vertu Brynjúlfur
bíddu uns þú færð þér sungl
(Brynjúlfur er karlmannsnafn sem ekki er notað lengur að því er ég veit og sungl er kokteill sem ég bjó til um daginn. Kiwi líkjör, vodka, Peach tree, appelsínusafi, sprite og klaki)
(Brynjúlfur er karlmannsnafn sem ekki er notað lengur að því er ég veit og sungl er kokteill sem ég bjó til um daginn. Kiwi líkjör, vodka, Peach tree, appelsínusafi, sprite og klaki)
...og ég sem hef alla tíð haldið að ekkert orð í íslensku rími við tungl, nú er ég glaður.
Ég veit ekki betur en að einn af mínum lærimeisturum heiti Brynjúlfur, og notar hann það nafn daglega, sem og þeir sem hann ávarpa.
Blessaður vertu Brynjúlfur
bíddu uns þú færð þér sungl
ja hérna hér. Sungl segirðu klórar sér í höfðinu. já, þetta er nú bara nokkuð snyrtilegt en ég ætla þó ekki að fara að leita að branduglunni alveg strax - ef það hefði hinsvegar verið eitthvað samhengi við fyrripartinn þá er ómögulegt að segja hvað hefði gerst. Ljómar upp
Af mér runnin áhrifin,
ekkert nú mig kætir.
Ætli alsæla og flýtamín
líðan mína bæti?
Af mér runnin áhrifin,
ekkert nú mig kætir.
Parkódin og otrivin,
öll mín meinin bætir
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Fullur aftur eða hálfúr,
óhljóðið er ekkert súngl.
Hergill Siglfjörð[img][/img]
Blessaður ljáðu mér mandólín
Gunnar á Hlíðarenda...
Vér ryðjumst hér inn og gerum þetta að laumupúkaþræði í þeim tilgangi að setja met.
Verðum við þá ekki að botna....
fáðu hérna hálft glas gin
það hressir kætir bætir
Af mér runnin áhrifin,
ekkert nú mig kætir.
Allir þekkja afdryfin,
enginn hverju sætir.
Vlad, berðu enga virðingu fyrir sögulegum þráðum? Svei..
Jú, það gerum vér með því að nýta þá til hagnýtra hluta, t.d. að setja met:
Sögulegir þræðir skara
fram úr til að setja met