Ég legg til stórkostlegar nýjar áætlanir sem byggja á stækkun landsvæðis þess er við höfum til yfirráða.
Með nútímatækni okkar Baggalútíumanna ætti okkur að vera kleift að stækka landið með skynsamlegri notkun gereyðingarvopna á hafi úti. Ljóst þykir mér að hægt verði auðveldlega að koma af stað runu eldgosa eftir endilöngum atlantshafshryggnum og þannig stækka Baggalútíu gífurlega.
Aukaverkanir eru smálegar og hafa ef til vill í för með sér smá ísöld sem enginn alvöru karlmaður mun láta á sig fá.
Ísöld myndi eigi koma að sök, það yrði hlýrra í syðstu héruðum Baggalútíu en nú er hér á skerinu (sér í lagi sé miðað við það ísaldarveður er ræður ríkjum hér í dag).
Mér líst vel á þetta, þó að ég nenni ekki að fara að nefna alla staðina á þessu aukalandi sem mun skapast.
Það verður að skipa Nafnanefnd
Vladimirstan og Vladistan eru afar hljómfögur nöfn.
Smekklegt.
En eru menn ekki að horfa framhjá augljósasta kostinum? Hið ómþýða nafn Júlía væri einkar heppilegt nafn á landi. Endingin -ía á sér mörg fordæmi; Belgía blikkar tinna, Austria (engilsaxneskt heiti Austurríkis), Persía (stórveldi á sinni tíð), Syria (Sýrland á vorri tungu), Lýbía (hmmm...óheppileg tengsl við hryðjuverk) - að ekki sé minnst á sjálft stórveldið Baggalútía!
Legg til að nefnd æðstu ráðherra fjalli um málið á næsta fundi.
Gott að fólk skuli taka svona vel í þessa hugmynd. Ég vil einfaldlega óska eftir því að eitt af hinum gígantísku eldfjöllum sem myndast verði kallað Blástakkur.
Nykrína ber af sér góðan þokka gæti næstum verið grískt.
Helvíti er hljómfagurt, sterkt nafn sem er líka vel til þess fallið að slá ótta í hjörtu óvinarins. (brosir út að eyrum dreiminn á svip)
Helvíti er hljómfagurt, sterkt nafn sem er líka vel til þess fallið að slá ótta í hjörtu óvinarins.
Það er hægt að fallast á að sú hlið baggalútíu sem snír niður heiti Helvíti. Það er aftur á móti mun vandasamara að finna örnefni á þá hlið sem snír upp.
Myndi ísöld í alvöru vera jafn skemmtinleg og í teiknimyndinni Ice Age?
Örugglega mun skemmtilegri, annars leggjum vér til að Veður(stofu)stjóri Baggalútíu svari þessu nánar.
Byltingar eru til að breyta hlutum á ofbeldisfullan hátt, því er út í hött að kalla neðri hluta Baggalútíu Helvíti. Ég gæti sæst á til málamynda að neðri hlutinn yrði kallaður Húsavík eða Hafnafjörður og þá viðkomandi bæjarfélag fengi það viðeigandi nafn Helvíti.
Gefur frá sér vellíðunarstunu og prumpar hljótt
Sé hann úr Reykjanesbæ segir þú Gestur. Það var merkilegt. Merkir það að þú sjáir dr. Zoidberg þar sem þú ert staddur í Reykjanesbæ eða ætlaðir þú að segja: "Ég veit að dr. Zoidberg ER úr Reykjanesbæ"?
Ég veit að Dr. Zoidberg sé úr Reykjanesbæ !!
Hvar lærðir þú íslensku?
Þessi fer beint til Hríseyjar...