Fjandans tvöfalda innskráning, vér rituðum innleggið hér að ofan.
Ég heimta að fá að vera handbendi keisarans!
Ég heimta að fá að vera handbendi keisarans!
Hmmm... hvaðan könnumst vér við þetta ? - þungt hugsi
Ég hef víðtæka reynslu á sviði handbendisstarfa og fólskuverk mín tala fyrir sig sjálf!
Við þurfum líka alvarlega að fara að íhuga að búa til amk. 30 ferkílómetra stjörnuspilli handa Blástakk, það er einhvern veginn svo...'hann'.
Sem Varnarmálaráðherra ákveð ég að setja það mál í þróun og bið hergagnaframleiðslumálaráðherra að gera kostnaðar/nytjagreiningu á verkinu.
Já, stjörnuspillir er akkúrat eitthvað sem ég hef haft að markmiði að eignast í náinni framtíð. Ég þarf varla að tyggja það ofaní ykkur hversu mikil hjálp einn slíkur yrði í fólskumálum framtíðarinnar.
Hér eru fyrstu drög að slíku farartæki:
Þessi er að vísu einungis 12800 metra langur en dugar vonandi til að byrja með.
Já ... helst til lítið en lofar góðu.
Ég veit fyrir víst og hef það skjalfest og hljóðritað að þið hafið verið að slúðra eins og síhneggjandi afbrýðissamar gróur á leiti.
Gott, þá skaltu vera keisari, en láttu þér ekki detta í hug að þú ráðir einhverju umfram aðra. Þetta er sýndarembætti eins og forsætisráðherraembættið.
Við erum bara að hugsa um þinn hag og hag Baggalútíu Hakuchi minn, vér viljum eigi að frk. Júlía valdi yður hjartarsorg við vitum hvað þér eruð tilfinninganæmur og auðsæranlegur og það gæti bitnað á mikilvægum störfum yðar innan ráðuneytis þíns, það er alveg vita vonlaust að yfirmaður yfirmanns ÖLíS sé með brotið hjarta eins og einhver unglingsskjáta.
Já auðvitað eru þetta bara "sýndarembætti" glottir og gefur Miklum Hákoni KEISARA olnbogaskot
Hvaða læti eru þetta út af fröken Júlíu, þeirri frómu dömu. Eruð þið eitthvað afbrýðissamir?
Verði ég í einhvers konar hjartasorg mun ég verða bitur og viðskotaillur sem mun einungis gera mig enn skilvirkari í starfi.
Við erum bara að hugsa um þinn hag og hag Baggalútíu Hakuchi minn, vér viljum eigi að frk. Júlía valdi yður hjartarsorg
Hvernig dettur ykkur í hug að ég brjóti nokkurs manns hjarta - eða aðra líkamsparta, ef því er að skipta? [snotur aðalhending atarna hjá mér] Er verið að ýja að því að ég sé tálkvendi og/eða glyðra? Þetta er í hæsta máta smekklaust.
Þá færð þú, Júlía, það verkefni að "smekka" Nykur
'Smekka' Nykur já...allt að því óvinnanlegt verkefni, en ég mun gera mitt besta. Fyrsta skrefið er að meina honum allan aðgang að barna-grímubúninga síðunum sem honum eru svo kærar. Vikulöng einangrun í myrkvuðu herbergi ætti að gera hann móttækilegan fyrir sjálfri 'smekkuninni' um miðjan febrúar.
Nei Guð minn góður, ekki fara að pynda hann aumingja Nykur
Smávegis ró og næði í vetrarrökkrinu hefur nú aldrei þótt gera mönnum mein og það er alsiða að taka (reið)hesta á hús á vetrum.
Þú hefur hins vegar rétt fyrir þér varðandi grímubúningana. Ég mun venja hann af þeim ósóma smám saman, byrja á að læða að myndum af unglingum í búningum og þannig venja hann við. Lokatakmarkið er að Nykur sjálfur leiti í myndir af eldri borgurum í eigin fötum. Það er fullur bati.
Kannski væri hægt að bræða hófana í lím líka. Ég get séð um þann part.
.
Þú hefur hins vegar rétt fyrir þér varðandi grímubúningana. Ég mun venja hann af þeim ósóma smám saman, byrja á að læða að myndum af unglingum í búningum og þannig venja hann við. Lokatakmarkið er að Nykur sjálfur leiti í myndir af eldri borgurum í eigin fötum. Það er fullur bati.
Sem smekkmálaráðherra eruð þér eigi með sérlega smekklega né hreina hugsun. Ég fullvissa ákæruvaldið að val mitt á stærð grímubúninga sem jú vissulega voru í barnanúmerum var byggt á þeirri sannfæringu minni að ég væri að velja réttar stærðir á ykkur stelpurnar. Sú ályktun mín er svo aftur byggð á lestri þess efnis sem þér og stallsystur þínar hafið sent hingað inn. Það vill nú svo skemmtilega til að umrædd grímubúningaleiga er með búninga fyrir alla aldurshópa og því eigi undarlegt þó Nykur hafi vafrað þar inn.
Með von um hreinari hugsanir þér til handa í framtíðinni, lifið heil.
Nykurinn
Ég fullvissa ákæruvaldið að val mitt á stærð grímubúninga sem jú vissulega voru í barnanúmerum var byggt á þeirri sannfæringu minni að ég væri að velja réttar stærðir á ykkur stelpurnar. Sú ályktun mín er svo aftur byggð á lestri þess efnis sem þér og stallsystur þínar hafið sent hingað inn.
Þú hefur semsé dregið þá 'skynsamlegu' ályktun að við stöllur værum á aldrinum 6-10 ára?! Vissulega erum við unglegar miðað við aldur, reynslu og fyrri störf, en ég get fullvissað þig um að við erum allar komnar vel af barnsaldri.