Ahh, ég skil. Þetta er einn af þráðunum sem byrjar á innleggi sem nú er horfið, þökk sé græna handklæðinu...
Spurningin er svo sú, hvort fleiri innlegg hafi horfið úr þræðinum. Altsvo að handklæðið græna hafi lagt orð í belg inn á milli hinna innleggjanna sem eftir standa. Starir þegjandi út í loftið
Nú vantar gestapóa skólaða í aðferðum fílólógíunnar (eða textafræði) til að rýna í þræðina og greina horfin innlegg, innlegg sem kalla mætti x. Mér sýndist á öllu að hæstvirt Mosa frænka væri fílólóg, hvar er hún á ögurstundu? Eins væri hægt að búa til skóla og mennta sérvalinn flokk gestapóa í fræðum textans.
Græna handklæðið? verður skelkaður og kíkir undir rúm
Var annars ekki umrætt handklæði farið að láta sjá sig aftur? Mér dettur í hug að setja þvottinn þann í þegnskylduvinnu við að endurrita þessi horfnu innlegg. Rétt eins og veggjakrotarar eru oft látnir þrífa óskapnaðinn eftir sig - nema þetta væri með öfugum formerkjum.
Græna handklæðið? verður skelkaður og kíkir undir rúm
Hvaða rugl er þetta um græn handklæði?
Reyndar nota ég sem sannur framsóknarmaður aldrei önnur handklæði en græn, en það er önnur saga.