Er ekki nær að hvetja Skrabba til dáða, frekar en letja þessa þrjá heiðursmenn, sem allir hafa eitthvað skemmtilegt til málanna að leggja?
Ég hef aldrei haft hug á að fara fram úr Skabba. Reyndar hef ég engan áhuga á að vera svona ofarlega og hef verið að grátbiðja Sverfil og Frelsishetju að velta mér úr öðru sætinu.
Ég hef viljandi dregið lappirnar að svara ýmsum merkum málefnum undanfarið, því hásætið er ekki mér að skapi (maður fær svo mikinn krampa í axlirnar á því að bogra eftir ákavítinu)...hér eftir svara ég bara einhverju tengdu ákavíti, kveðskap og... jah, flestu því sem máli skiptir...reynir að ákveða sig hvort þetta skiptir einhverju máli og lætur það síðan flakka
Ég ætla að halda áfram að koma með 200 innlegg á dag þar til ég mun ramba á barmi toppsins.
Hakuchi! þú verður að fara að passa þig!
Tjahh, Hakuchi veit alveg hvað hann þarf að passa sig á grunar mig.
Að passa eða passa ekki, það er spurningin.
Svo virðist sem Hakuchi hafi svikist undan merkjum á þráð þessum og skotist beint í efsta sætið. Ekta karlmaður!
[s]Gefur frá sér vellíðunarstunu [/s]
Ég get bara ekki orða bundist. Þetta er stórkostlegur þráður! Ljómar upp
Vjer erum núna í 6. sæti listans. Vantar oss nær 20.000 innlegg til að ná 1. sætinu þannig að eigi er hætta á sama vandamáli og hjá Hakuchi o.fl. árið 2004 á næstunni. En þessi þráður vekur góðar minningar. Ætli þeir sem hann hófu hafi óttast svo að ná 1. sætinu eða að þeim hafi verið rænt af óvinum ríkisins ? Hrökklast afturábak og hrasar við
Kannski hlewagastiR geti frætt okkur um málið :)
Kannski hlewagastiR geti frætt okkur um málið :)
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Fellur í stafi
Man ekkert eftir þessum þræði