Kannski getum við skipt út páfanum fyrir erfðabreyttan lunda.
En viljum við það , hverjar yrðu afleiðingarnar, afhverju er mér ekki alveg sama, hver er tilgangurinn, afhverju var ég að drekka allt þetta Ákavíti sem Skabbi gaf mér? haltrar eftir göngunum í austurálmu ráðherrabústaðsins leitandi að meira að drekka, hittir þá austuríska háskólastúdínu sem er "intern" á skrifstofu ÖLÍS, dregur hana með sér inní kústaskáp
Latibær (fussar, sveiar og hrækir af andstygð) er óþverrabæli sem er í harðri samkeppni við Baggalútíu.
Ég hef heyrt því fleygt að Latibær sé langt kominn með að leggja undir sig Ameríkuhrepp. Einnig hafa þeir komið upp öðru hagkerfi hér sem enginn hræðist þar sem það er dulbúið sem "þykistu hagkerfi". Þeir hafa notað sjónvarpið til að heilaþvo börn svo þau taki upp ljóta siði ss. hreyfingu ýmiskonar og grænmetisát. Ofan á allt saman hafa yfirvöld í þessu bæli handsamað, handtekið og lokað inni Glanna vin minn.
Huhhh og hverskonar þjóðfélag er það sem kallar aðalmanninn ekki konung, keisara eða forseta heldur álf.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Þetta er greinilega innrás huldufólksins!
-istan löndin eins og þau leggja sig ætti að innlima í Baggalútíu, til að létta skólabörnum þessa heims lífið. Eitt gott nafn í stað margra vondra!
-istan löndin eins og þau leggja sig ætti að innlima í Baggalútíu, til að létta skólabörnum þessa heims lífið. Eitt gott nafn í stað margra vondra!
... og kalla svæðið Stanistan? Sbr. Staðastaðir
Nóg um alla þessa óvini, er ekki kominn tími á að skilgreina hverjum við viljum leifa að vera bandamenn okkar?
Bandamenn??
Eru það ekki bara alger yfirráð, gereyðing eða dauði sem koma til greina?
Bandamenn??
Eru það ekki bara alger yfirráð, gereyðing eða dauði sem koma til greina?
Þurfa kannski ekkert endilega að vera bandamenn okkar alltaf, bara þangað til þeir hafa hjálpað okkur að ná ifirráðum ifir öllum óvinunum. núir saman höndunum af ánægju ifir ráðabrugginu
Ég legg til að við tölum við persónulegan einkavin minn Moammar Gaddafi.
Nei ekki Moammar Gaddafi, þá fer allt í bál og brand. Hann missir sig alltaf gjörsamlega og þar að auki er hann svo kostnaðarsamur. Manstu seinast þegar við töluðum við hann....... svei!
Hahaha! Það var nú eiginlega mér að kenna.
Í stað þess að deila endalaust um hvaða þjóðir þarf að ráðast á, og hvaða þjóðir við viljum ekki skulum við bara taka allar þjóðir jarðarinnar í stafrófsröð! Þá getum við hafist handa við að reysa Baggalútíu, góðir hálsar.(Og aðrir líkamspartar)
Góði Gestur. Láttu ekki svokallaða ríkisstjórn Baggalútíu slá ryki í augu þér og espa þig til illvirkja og hryðjuverka. Gakk heldur í lið með stjórnarandstöðunni. Með sameinuðu átaki er hægt að hrekja stjórnina frá völdum.
Já, já, það er nú komin helgi og þá lítur maður lífið oft bjartsýnni augum en í grámyglu hversdagsins. Skál fyrir því!
SKÁL ! Undrast það að vera allt í einu farinn að skála við stjórnarandstöðuna en fattar svo að það er ekki bara komin helgi hjá stjórnarandstöðunni heldur líka hjá stjórninni