Ekki "Snemma á kvöldin" með Gylfa, það er falinn dýrðgripur í klósetti íslenskrar poppmenningar...
og eyjan mín bjarta! þar fer sannur herramaður syngjandi um æskustöðvar sínar á einlægan og jafnframt grátbroslegan máta. Gylfa Ægis í forsætisráðherrann!
Ég mundi allt í einu eftir skelfilegu lagi. En ég man ekki alveg hvað það heitir. Líklega jólaball eða eitthvað álíka með Upplyftingu held ég. Þetta var ofspilað fyrir löngu og viðlagið er eitthvað á þessa leið
"ég missti mig og til hennar gekk.......bla bla ....var hún orðin mín að nýju"
Þetta er að sjálfsögðu squarehead-anthemið "Skólaball" með Brimkló: "...Ég missteig mig og til hennar gekk! Var hún orðin mín að nýýjjuuhhh! (hér kemur saxófónssóló). Brimkló notar Bose!!!
Tell me more lagið í flutningi Rokklinganna var skelfilegt á tíma sínum
Tell me more lagið í flutningi Rokklinganna var skelfilegt á tíma sínum
Já, einmitt! Hvað varð um Rokklingana?? Samkvæmt barnastjörnuhefðinni áttu þau að hafa brunnið upp í sukki, eiturlyfjaneyslu, vændi, fjársvikum og öðrum skipulegum og óskipulegum glæpum.
Er Rokklingaskólinn ennþá starfandi og er enn tekið við nýnemum??
Vitað er um a.m.k. einn rokkling sem flýði vestur um haf og býr þar í felum.
Svo má nú ekki gleyma stelpuglyðrunni henni Breiðnýju Spjóts (e. Britney Spears). Það er nú ekki allt saman gargandi snilld lögin sem hún er að "syngja". Það eina góða er að nú er hún farin að gera eitthvað sem hún getur og gerir vel, þ.e.a.s. að bera sig fyrir áhorfendur. Hún ætti held ég að einbeita sér að því og láta "sönginn" alveg eiga sig.
...og svo Gylfa Ægissonar katalógurinn eins og hann leggur sig...
Þarna verður að gera undantekningar. Eða a.m.k. eina: Gústi Guðsmaður. "Hann keypti lítinn bát........"
Algjör snilld!
"Sigurvinn hann bátinn skírði, útgerðinni drottinn stýrði, ágóðinn til kristniboðsins rann." Snilld, hrein og tær snilld!
Allt sem að Leoncie hefur gert toppar þennan lista ykkar!
Stekkur hæð sína og raular vi hihihihihið komum bæði frá kópavogi!
Hey Macarena!
Og auðvitað allt sem greifarnir hafa gert eftir 1995, og reyndar meirihlutinn fyrir þann tíma líka.
ÉG ER FURÐUVERK
Rock me Amadeus með Falco er hreint út sagt skelfilegt lag...
Já eða Jeanie...