Ég veit nú ekki hvort hann viðurkennir það...strákurinn er ekki nógu mikið fól.
Ég bind reyndar ennþá vonir við drenginn. En eitt er víst að hann hefur líkamshæðina frá mömmu sinni. Hann nær varla yfir 1.60. Ég hef reyndar grunsemdir um þetta allt saman.
Hmmm...er hann nokkuð hobbiti? Ertu viss um að hann sé sonur þinn?
Þessi helvítis Bilbó er búinn að vera að þvælast um á Naboo veit ég.
Bölvaður melurinn...best að leita kauða uppi og spyrja hann út í þetta...
Það er verst að barnsmóðir mín skuli vera dauð. Ég hefði getað kyrkt sannleikann útúr henni.
Ég bind reyndar ennþá vonir við drenginn. En eitt er víst að hann hefur líkamshæðina frá mömmu sinni. Hann nær varla yfir 1.60. Ég hef reyndar grunsemdir um þetta allt saman.
Þú verður að láta hann horfa á fleiri bannaðar videomyndir, ég mæli með Rocky og Rambo og líka Italian Stalion (sem er stranglega bönnuð börnum og hestum)
Ég hef íhugað að reyna að gera úr honum öfga-hægri mann því eins og allir vita er stutt í myrku hliðina þaðan.
-Ég fletti Loga Geimgengli upp í Íslendingabók, þar kom í ljós að hann er ömmubróðir sjálfs sín. Auk þess sem hann og Blástakkur eru sammæðra, en getnir af sitthvorum föðurnum sem þó voru skildir, sem leiðir til þess að þeir eiga sameiginlegan langafa í bæði föður og móðurætt.
Þannig að þetta er í raun sára einfalt.
Það hlaut að vera eitthvað svoleiðis enda mátturinn svo sterkur í okkur báðum.
Þá er bara að láta hann þylja stöðugt: "Engir skattar Engir skattar Engir skattar" og "Ringlureið Ringlureið Ringlureið"
Já, það er nauðsynlegt að lágmarka umsvif stjórnvalda. (Nema þar sem ég er við völd).
Er þá ekki við hæfi að breyta stjórnarráðinu í kartöflugeymslur?
Ég tel að ríkissumsvif þar sem ég kem við sögu séu hvergi nógu mikil.
Nei, við megum ekki láta alla halda að við séum kartöflu-lýðveldi. Betra væri að breyta því í eina risastóra hakkavél!
Síðan er aldrei að vita hvort við förum út í bjúgur og pylsur.