ég man eftir að þegar ég var lítill ormur þá var til kvenpersónu að nafni Lofthæna.Ekkert slær það út
Grýla og Leppalúði eru nöfn sem hafa alltof lengi legið í láginni. Einnig hafa Kálfur og Lambi ekki verið að sækja í sig veðrið síðan síðustu aldirnar. Og Hrútur er nafn sem hefur verið vanrækt þrátt fyrir að vera ein af aðalpersónum Njálsssögu. Og víðar í fornsögunum eru þessi fínu nöfn Þangbrandur, Hrói, Játvarður, Hrólfur, Smiður. Nóg er af nöfnunum ef menn vilja finna þau.
Hrólfur er sniðugt nafn, en mun sniðugara er að heita Hrólfur Hraundal , stórkostlegt alveg, þessi maður ber nafn sem svo sannarlega á heima í Baggalútíu!!
Mér finnst sárlega vanta nöfn á borð við Þorskur, Ýsa, Ufsi, Karfi - jafnvel Síld og Loðna. Sandur og Möl Steinsbörn væru líka góð viðbót við nafnaflóruna.
Mér þykir skelfilegt að engin heiti nafninu Drulla. Það er meðfærilegt nafn.
Óli er í einfaldleika sínum sérstaklega sniðugt nafn. Það einhvernveginn lekur af því meðalmennskan og plebbalyktin finnst langt að.
Eilífur Friður
hér má sjá rjómann af því sniðugasta hingað til, auk nokkurra nýrra:
Adolf H
Loki Laufeyjarson
Guðríður Helga
Íris Mist
Dufþakur
Ljótur
Rán
Hrólfur Hraundal
Sturla Fanndal
Jónína Shipp
Álfheiður Árdal
Bergljót Blöndal
Guðný Gröndal
Lilja Laxdal
Eiríksína Ásgrímsdóttir
Nikulás Nikulásson
Eilífur Friður
Númi Fjeldsted
Bóthildur Benediktsdóttir
Alveg fyllist maður ættjarðarást við að sjá svona kjarnyrt og hljómfögur nöfn
Svo eru það mennirnir sem velja sér störf eftir nafni sínu sbr. Sigurjón Bláfeld loðdýraræktarráðunautur.
Og fjölskyldan að Fýlshólum 13
Þröstur Arnarson
Ugla Svansdóttir
Lóa Þrastardóttir
Hrafn Þrastarson
-
Búa ekki líka í þessu húsi þau?
Haukur Hauksson
Bíbí Mávsdóttir
Pysja Hauksdóttir
Maríuerla Hauksdóttir og
Spói Hauksson
Jú mikið rétt. Svo búa í kjallaranum þau ;
Björn Högnason
Hrefna Dýradóttir
Úlfur Björnsson
Hjörtur Björnsson
-
Mikið er viðeigandi að Eilífur Friður sé meðferðarfulltrúi.
Þórgnýr Dýrfjörð hefir mér alltaf þótt öflugt nafn.
En Agnar Smári, það þykir mér skondið mjög. Einn þeirra var einmitt í sjónvarpinu í dag.
Mér finnst að það ætti að banna það að mönnum séu gefin dýranöfn nema því fylgi eitthvað lýsingarorð. Eins og hjá indjánum. Björn Bjarnason yrði þá Blái Björn eða Hási Björn. Davíð gæti heitað Grimmi Úlfur. O.s.frv.