— GESTAPÓ —
Óvinir allra
» Gestapó   » Baggalútía
     1, 2, 3  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hafþór Hübner 19/1/04 15:16

Ég ætla að stofna aðra hreyfingu sem er á móti bæði Baggalútíu og Andspyrnunni! Með nægum hryðjuverkum ættum við að geta steypt Baggalútíu af stalli, fengið upplýsingar um samastað ritstjórnar og kollvelt þessum andskotans óþverralýð sem hefur safnast saman hérna!

ÁFRAM, ÁFRAM BITRIR MENN!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 19/1/04 15:22

Osama Bin Bush Laden, ert þetta þú?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 19/1/04 15:25

Ja nú líst mér á, það er ekki orðið þverfótað hérna fyrir smákóngum með mikilmennskubrjálaði hvernig endar þetta eiginlega!
‹Klæðir sig í hnéháuleðurstígvélin sín með gullslegnu sporunum, sveipar um sig safalafeldinum, þrífur demantskórónuna af hattastatífinu og rýkur út af bataheimili ráðherrana ›

Krónprins & Forsætisráðherra Baggalútíu • Baggalútíu allt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hafþór Hübner 19/1/04 15:25

Osama bla Lada árgerð ´88 who?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 19/1/04 15:27

ég get ekki ímyndað mér annað en að þessi önnur andspyrna verði ansi þunnskipuð... jafnvel þunnskipaðri en hryðjuverkahópurinn Andspyrnan sem starfar nú.

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 19/1/04 15:34

Sérstaklega með svona þunnan foringja...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 19/1/04 15:35

‹skellir upp úr og setur ólífu ofan í martini drykkinn sinn›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 19/1/04 15:40

‹Stekkur hæð sína› Þetta eru frábær tíðindi er vér fáum hér og sýnir hve vel gengur, óvinir vorir eru margklofnir í örsmáar fylkingar er berjast ekki hvað síst innbyrðis.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hafþór Hübner 19/1/04 15:42

hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. ‹byrjar að semja samning›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 19/1/04 15:49

Vladimir Fuckov mælti:

...................óvinir vorir eru margklofnir í örsmáar fylkingar er berjast ekki hvað síst innbyrðis.

Þessi lýsing gæti vel átt við stjórnina ‹Þegir starandi út í loftið›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 19/1/04 16:02

feministi mælti:

Vladimir Fuckov mælti:

...................óvinir vorir eru margklofnir í örsmáar fylkingar er berjast ekki hvað síst innbyrðis.

Þessi lýsing gæti vel átt við stjórnina ‹Þegir starandi út í loftið›

Svona svona það er ekki endalaust hægt að sakast við Grétar þó að Sigga Beinteins hafi farið í einhverja fýlu þarna um árið.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 19/1/04 16:04

Hafþór Hübner mælti:

hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. ‹byrjar að semja samning›

Viltu þá ekki byrja á því að breyta kjörorði ykkar í "Áfram áfram bitrir menn og konur!"

Krónprins & Forsætisráðherra Baggalútíu • Baggalútíu allt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 19/1/04 16:06

Nykur mælti:

Hafþór Hübner mælti:

hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. ‹byrjar að semja samning›

Viltu þá ekki byrja á því að breyta kjörorði ykkar í "Áfram áfram bitrir menn og konur!"

Nei Nykur áfram áfram bitrir menn og feministar.

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 19/1/04 16:07

Frelsishetjan mælti:

Nykur mælti:

Hafþór Hübner mælti:

hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. ‹byrjar að semja samning›

Viltu þá ekki byrja á því að breyta kjörorði ykkar í "Áfram áfram bitrir menn og konur!"

Nei Nykur áfram áfram bitrir menn og feministar.

Já hvernig læt ég..

Krónprins & Forsætisráðherra Baggalútíu • Baggalútíu allt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 19/1/04 16:21

æ, það er bara svolítið sætt þegar fólk eins og Feministi og Hafþór Hübner heldur að það ráði einhverju

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nykur 19/1/04 16:24

vægast sagt krúttlegt verð ég að segja..

Krónprins & Forsætisráðherra Baggalútíu • Baggalútíu allt!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 19/1/04 16:48

Músjí músjí, elskurnar mínar...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 19/1/04 17:12

Mikill Hákon mælti:

æ, það er bara svolítið sætt þegar fólk eins og Feministi og Hafþór Hübner heldur að það ráði einhverju

Feministi ræður sér a.m.k. sjálfur. Það er varla hægt að segja það um ykkur stjórnarliðana sem eltið skottið hver á öðrum og setjið ný met í hroka daglega.

Andstaðan gefst ekki upp

     1, 2, 3  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: