Ég ætla að stofna aðra hreyfingu sem er á móti bæði Baggalútíu og Andspyrnunni! Með nægum hryðjuverkum ættum við að geta steypt Baggalútíu af stalli, fengið upplýsingar um samastað ritstjórnar og kollvelt þessum andskotans óþverralýð sem hefur safnast saman hérna!
ÁFRAM, ÁFRAM BITRIR MENN!
Ja nú líst mér á, það er ekki orðið þverfótað hérna fyrir smákóngum með mikilmennskubrjálaði hvernig endar þetta eiginlega!
Klæðir sig í hnéháuleðurstígvélin sín með gullslegnu sporunum, sveipar um sig safalafeldinum, þrífur demantskórónuna af hattastatífinu og rýkur út af bataheimili ráðherrana
ég get ekki ímyndað mér annað en að þessi önnur andspyrna verði ansi þunnskipuð... jafnvel þunnskipaðri en hryðjuverkahópurinn Andspyrnan sem starfar nú.
skellir upp úr og setur ólífu ofan í martini drykkinn sinn
Stekkur hæð sína Þetta eru frábær tíðindi er vér fáum hér og sýnir hve vel gengur, óvinir vorir eru margklofnir í örsmáar fylkingar er berjast ekki hvað síst innbyrðis.
hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. byrjar að semja samning
...................óvinir vorir eru margklofnir í örsmáar fylkingar er berjast ekki hvað síst innbyrðis.
Þessi lýsing gæti vel átt við stjórnina Þegir starandi út í loftið

Svona svona það er ekki endalaust hægt að sakast við Grétar þó að Sigga Beinteins hafi farið í einhverja fýlu þarna um árið.
hver veit nema að maður taki höndum saman við Feminista við að steypa Baggalútíu af stalli. byrjar að semja samning
Viltu þá ekki byrja á því að breyta kjörorði ykkar í "Áfram áfram bitrir menn og konur!"

Nei Nykur áfram áfram bitrir menn og feministar.

Já hvernig læt ég..
æ, það er bara svolítið sætt þegar fólk eins og Feministi og Hafþór Hübner heldur að það ráði einhverju
vægast sagt krúttlegt verð ég að segja..
æ, það er bara svolítið sætt þegar fólk eins og Feministi og Hafþór Hübner heldur að það ráði einhverju
Feministi ræður sér a.m.k. sjálfur. Það er varla hægt að segja það um ykkur stjórnarliðana sem eltið skottið hver á öðrum og setjið ný met í hroka daglega.
Andstaðan gefst ekki upp