Þessi á vel við nú þegar kennarar eru að koma til vinnu +á ný:
Horfinn er ei heljarvandinn.
Hafið hvorki graut né spón.
Táradalur, trega blandinn.
Teachers, leave the kids alone.
Þorgrímur frá starfi féll
Og félögin hljóta rassa skell
Íslensku fyrir ófag en
Statoil forandrer hverdagen
Ekkert væl ég vil af þræl
VER SÆL!
Svæfum þvælu sorgir bæl
Sieg HEIL!
Út á sjóinn enn ég rœ
engan fisk í dag ég fœ
Súr ég míg í saltan sœ
Heb je even voor mij
Hafðu þetta hróið mitt
held ég vísi þér á bug
getur nú hver geymt allt sitt
geef mijn pilsje eens terug!
Er sér hún mig hún Sísí
soldið blóðið frýs í
æðum hennar "easy" (ís í?)
Veni, vidi, visi.
Hafðu þetta hróið mitt
held ég vísi þér á bug
getur nú hver geymt allt sitt
geef mijn pilsje eens terug!
Almáttugur! Ei grunaði mig að fleiri væru hér mæltir á slíkt hrognamál.
Kvöldið er fagurt og kaldur máninn
kærleiksríkum geislum skín
Veittu mér nú meira vín
non, je regrette rien
Dapur hlusta á dægurlög
Drósin ein tælir svein.
Prinsinn mælti prúður mjög
Purple rain, purple rain.
Úti í regni einn á grein,
emjar leiðust vein.
Ég sendi steininn svæfi mein
“singing in the rain”
Jólalög við jötu sem
ég og vitringana lem.
Til þín þó ég trauðla kem;
"A Child is born in Betlehem.
Á krossi Jesú karlinn hékk.
Kvalinn, ekki fögur sjón.
Vældi er framhjá vörður gekk:
Viva la Revolution
Skóghildur var skapfúl.
skeflilega þrautfúl.
Kyrjaði oftast andfúl:
“Oh, Come All Yeah Faithfull!”
Maturinn er mannsins megin
maginn orðinn skák og mát.
Bændabrauðin bjór-legin
Bratwurst und Sauerkraut.
Er ekki rétt að halda þessu til haga hér.........
Baunir eru margar mínar
mestanpart fyrir slikk
Þær mér finnast allar fínar
Fucking good'n quick
Úrtala ég íhaldsgóður
afturhaldskommatitt.
Hamslaus áfram herði róður
holy fucking shit!
Orðið hugs'um alltaf reyni
Orðinu fylgir regla væn
Orðinu þig ekki leyni:
Ordnung, Herr Muss S. Sein
Sólar ei sýn
sé ég og hrín
grátt er nú grín
„God save the Queen!”
Ósköp er tilveran unaðsleg
og yndislega væn.
Sturtubunan stórkostleg
"und ruhig fließt der Rhein".
(úr Lorelei = Kyrrlát flýtur Rín)