Lagt hef ég margsinnis land undir fót,
og lífsins notið í París og Róm.
En klöngrast nú haltur um kletta og grjót,
I can't find my way home.
Er hélt ég um daginn heim frá vinnu,
var hús mitt af drasli undir lagt.
Því ynnti ég mína ektakvinnu:
Was habst du heute gemacht?
Ferleg er orðin mín frú
fitukerlingin sú.
Burtu ég bregð mér nú
On a Bicycle Built For Two
Elsa heima átti undir súð
Át einn morgun súkkulaðisnúð
sem hún hafði séð einn dag í búð,
smuk som et stjerneskud.
Þykir mörgum þrælgaman að ríða
þó hvorki eigi konu eða hest
Sveittur tautar Svavar dottinn í´ða:
"Svenska tjejerne knullar best".
Ef viltu koma við hjá mér
þér vísað ekki í kot er.
Þú bæði færð að smakka smér
og Smoke on the water.
Tannpína og táverkur er það.
Tóbakshósti og hnuss.
Ætli vísan ætli að verða.
Opus posthumus.
Hljómar hrotusinfónían, ópus númer sjö.
Heyrist brakið gorma.
Náhundana nefni ég, shit og fokk og djö.
Nessun dorma.
Varlega segir til vamms
vinur Bryndísar Schrams,
ef áformar eitthvað grams:
Aimez-vous Brahms?
Hann sefur ennþá forsetinn og hrýtur eins og naut.
Hans merkisdagar verða fyrir bí.
Ég boða fundinn ríkisráðs, ég læðist hljótt á braut.
Is this a dagger I see here before my?
Gígur ei smár eftir dínamít
Íbúðarhúsið, það stendur ei
Frú Wexford byrst við soninn Pete:
"What did you learn in school today ?!"
Mikil gleði og mikið snarl
mikið ákavíti og vín
Gellur þá við prins gamli Karl
God save our gracious queen
Nú Albinóa Nói í Frakkaríki er.
Fölur frónbúinn segir og frakkur var
við maddömmu eina sem hann sér, hún var ber.
"voulez vous coucher avec moi ce soir?"
Á hvað ertu að horfa?
innti ég bóndann Torfa,
vin hinna vönduðu orfa:
Viina Koskenkorva.
Litli Kalli kónguló, kátur var á ralli,
með kóngulóarstelpu sem hann sá á balli.
Komdu hingað heillin mín, hrópaði hann Kalli:
Hämä-hämähäkki kiipes langalle.
Úr fötunni skvetti ég skyri og rjóma.
Skammist þið ykkar, þér hundar og grey.
Ég mótmælti alltaf ykkar ó- djöfuls -sóma.
Og segi eins og Frankie: I did it my way!
Orðin marka blek á blaði.
Beittur hugur sí og æ.
Förum beint á Bessastaði
Tökum grís and hang him high.
Fjandinn allur fjarri mér
fjalla- ekur þú um -bak
Af hverju arka ég burt frá þér?
Arme vuile klootzak