smellir fingrunum, 10 undurfagrar konur koma með börur, vínber og rauðvín og bera Skabba burt á þynnkuheimili ráðherranna
hehe, mikið hann hann að lifa, kallinn
smellir hófunum í gríð og erg djös.. hvernig gerði Mikill Hákon þetta.

Smellir fingrum, 10 ansi þykkar konur koma með börur, plástra og blóðþykkni og bera Limbra í burt á sjúkraheimili almúgans fjandi er gott sjúkrasamlag í Baggalútíu
Nykur, þetta krefst svolítillar æfingar, en þetta byggist samt aðallega á því að hafa smávegis kóbaltduft milli fingra sér, þá kemur þessi góði hljómur sem þær hlýða. Og munið:
meira kóbaltduft = fleiri konur og meiri munaður.
setur kóbaltduft á fingurgómana, smellir fingrum og um leið birtast 10 undurfagrar konur með hvítvín, vínber og kex og bera hann burt í hásæti inn á skemmtiheimili ráðherranna
Já svona.. smellir kóbaltbornum hófunum saman með háum smelli og um leið birtist kvennalandslið Austurþjóðverja í kúluvarpi frá Ólympíuleikunum í Montréal 1976 nú orðnar 28 árum eldri og lemja hann í spað.
æ, æ
Þetta kemur með æfingunni
smellir fingrum og um leið koma 20 undurfagrar hjúkkur með börur, besta verkjalyf í heimi (vodka) og bera Nykur á bataheimili ráðherrana
Nykri líður vel á bataheimilinu og hefur náð skjótum bata. Nýtur hann útiveru og návist fagurra kvenna í búningum eftir hans óskum. Hér er ein mynd þar sem verið er að "skemmta" forsætisráðherra vorum.
Klikk Klakk.. smellir saman hófunum af mikilli varkárni
Andsk... Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Byggingu Ráðherrabústað lauk í nótt en ríflega 60.000 "sjálfboðaliðar" flestir færeyskir og grænlenskir unnu við endurbæturnar, en byggt var við sumarbústað Skabba í Heiðmörk.
Hakuchi fór í "hressandi" bað í einu af 70 baðherbergjum bústaðsins
Byggingu Ráðherrabústað lauk í nótt en ríflega 60.000 "sjálfboðaliðar" flestir færeyskir og grænlenskir unnu við endurbæturnar, en byggt var við sumarbústað Skabba í Heiðmörk.
Hey, hvað varð um kamarinn, hann var á fornminjaskrá (og svo er mér svo mál núna, þynnkuræpan er verst).

Engar áhyggjur Skabbi minn hann stendur enn þarna í túnfætinum, það er bara aðeins verið að lappa uppá hann, mála og þrífa o.þ.h þú verður bara sýna smá biðlund.
Muna: Byggja hringleikahús í Rómverskum stíl fyrir þjóðhátíðardaginn og láta Færeyinga berjast við hvorn annan eða önnur furðudýr þar.
Jafnframt leggjum vér til að ráðherrabústaðahöllin verði stækkuð tífalt, hún er svo glæsilegt að vér viljum ólmir sjá tífalt meira af slíku.
Ég vil geta siglt á neðanjarðarkafbátum undir borginni milli heimilis og vinnu. Er það síðan nokkuð til of mikils vænst að mannætuhákarlar verði í neðanjarðargöngunum til að éta alla andspyrnumenn sem kafað kynnu í hermdarverkaskini.
úff, við förum að þurfa fleiri skattlönd... hvenær ráðumst við á Grænland?
úff, við förum að þurfa fleiri skattlönd... hvenær ráðumst við á Grænland?
Grænland erfði Rauðbjörn nýverrið sem eini núlifandi ættingi Eiríks Rauða, en þar sem ekkert hefur til hans spurst síðan tilrauna hans með freknótta Kóbaltið, þá var Grænland gert upptækt af Baggalútíu og Hakuchi skipaður Landstjóri, bygging "Klakahallarinnar" í Nuuk er hafin og gengur eftir áætlun. Ekki hefur verið mikið um skærur við innfædda en Sauðir Dr. Zoidbergs og Ölís eru með mikinn viðbúnað á hernaðarlegum mikilvægum stöðum í og við Grænland.
Ég vil geta siglt á neðanjarðarkafbátum undir borginni milli heimilis og vinnu. Er það síðan nokkuð til of mikils vænst að mannætuhákarlar verði í neðanjarðargöngunum til að éta alla andspyrnumenn sem kafað kynnu í hermdarverkaskini.
Nei þetta er mjög eðlileg krafa og göngin ættu að verða tilbúin kl. 16 n.k. þriðjudag. Mannætuhákarlana áttum við fyrir, en þeir voru í þjálfun til að gerast "blindrarhákarlar" fyrir blinda og sjónskerta kafara, en því miður tókst þjálfunin ekki sem skildi þar sem þeir áttu það til að éta viðfangsefnin. Þess má geta til gamans að Herbjörn var "sjálboðaliði" við þjálfun hákarlana, en hann gengur nú undir nafninu Herbjörn lappalausi.