Bull og vitleysa. Richey Edwards fór í felur árið 1985 og hefur enn ekki fundist. Elvis Presley gerir betur, en hann fór í felur árið 1977. Svo tveir séu nefndir. Saddam? Hann fannst, og var ekki einu sinni í felum allt árið.
Ekki veit ég betur en Geirfinnur hafi átt fund með Elvis á Majorka laust fyrir 1980.
Elli vissi og Brúsi og fleiri týndu sjálfum sér sen Meistari Meistaranna er Jesú.
Elli vissi og Brúsi og fleiri týndu sjálfum sér sen Meistari Meistaranna er Jesú.
Bull og vitleysa. Eins og Sókrates sagði, Mikli Pan er allur. Og hefur hann Pan aldrei fundist síðan að hann sagði þetta. Talið er svo að Pan hafi tekið sér nýtt gervi og m.a. skýrt sig Lúcifer en það hefur aldrei sannast. Hann hefur einnig verið kallaður fleiri nöfnum.
Annars held ég að Feluleikjaþjóðin, menningin, borgin og eða Landið hljóti að teljast Atlantis.
Atlantis? Hvaða della, hin forna Atlantis breytti bara nafni sínu í Hafnarfjörð.
Atlantis? Hvaða della, hin forna Atlantis breytti bara nafni sínu í Hafnarfjörð.
Hvaða endemis þvæla er þetta. Atlantis á að vera borg hámenningar og lista m.a. eins er líka talað um að þeir hafi yfir gjöreyðingarvopnum að ráða. Hafnfirðingar hafa hinsvegar verið grín alheimsins fyrir heimsku sína.
Skv. áreiðanlegum sögusögnum hef ég heyrt að heimska Hafnfirðinga og menningarleysi sé einmitt stór hluti í blekkingarleiknum. Þannig haldi þeir þjóð sinni hulinni um leið og þeir geta haft opin samskipti við umheiminn.
Mér skilst líka að bærinn sjálfur sé bara 'front' og að neðanjarðar sé að finna feiknarlegt flæmi hinnar raunveru legu Atlantis, þar sem tækni og viska hefur náð hæðum sem mannkynið sjálft muni aldrei ná.
Heimsmeistarinn í feluleik hlýtur að vera Illugi Gunnarsson aðst.m forsætisráðherra sem var á fundi í London þótt hann væri þar ekki
sbr. vísu sem ég las í einhverju MAD-blaði fyrir margt löngu:
"The other day upon the stairs.
I saw a man that wasn´t there
He wasn´t there again today.
I think he´s from the CIA."
En hvað með Ólaf konung Tryggvason? Hann stökk af Orminum langa í fullum herklæðum fyrir rúmum þúsund árum og er enn að synda í kafi - það kallar maður gott andþol!
Neinei, hann vinnur sem trúður í barnaafmælum í Atlantis (Hafnarfirði).
huhhh, ef Hafnafjörður er Atlantis getum við þá ekki sökkt því leiðindabæli og skrílnum sem þar býr með góðri samvisku.
Ljómar upp
Það er varhugarvert því við vitum í raun ekki hve mörgum ljósárum Atlantisbúar eru á undan okkur í tækni. Hinn ókannaði óvinur er ekki eitthvað sem gáfulegt er að ráðast á.
Það er varhugarvert því við vitum í raun ekki hve mörgum ljósárum Atlantisbúar eru á undan okkur í tækni. Hinn ókannaði óvinur er ekki eitthvað sem gáfulegt er að ráðast á.
Nú þá vonum við bara að þeir séu minnstakosti 10 þús ljósárum á unda okkur í tækni því að þá værum við 10 þús ljósár að taka afleiðingunum.
Eins fáfróður og ég nú er í vísindum, þá veit ég samt að ljósár er vegalengd... skil ekki alveg hvernig menn geti verið einhverja vegalengd á undan öðrum í tækni ? En eins og ég segi... ég er fáfróður í vísindum.
-

Skrefi á undan...