Væri nokkuð svo galið að setja upp gagnvirka spjallsíðu hér, svona í líkingu við Irc-ið? Eða er það bara dauðadæmt??
Eitthvað held ég að slíkt myndi hafa áhrif á þjóðarframleiðsluna.
Já, spjall hefur ekkert upp á sig. Ákvarðanir skulu teknar að vel ígrunduðu máli og það næst engin niðurstaða með eilífu þvaðri.
Enda myndu margir af röngu þroskastigi vera fljótir að skemma það.
-
Formið er fullkomið, það væri hroðalegur lágmenningarbragur á því að röflvæða baggalút með irc viðmóti.
Arrrg.Yrkið er afkvæmi hins illa og á ekkert erindi á háþróaðan vef eins og Baggalút Blótar herfilega og rífur hár sitt og öskrar svakalega
Svei ! IRCið er ávísun á innbyrðis deilur og upplausn. Hafi einhverjir áhuga á slíkum ósóma geta þeir hist einhversstaðar annarsstaðar á hinu svokallaða Interneti heldur en hér.
Svei ! IRCið er ávísun á innbyrðis deilur og upplausn. Hafi einhverjir áhuga á slíkum ósóma geta þeir hist einhversstaðar annarsstaðar á hinu svokallaða Interneti heldur en hér.
IRc-ið er alltof "í gær" í framtíðinni þá munum við notast við bréfdúfur eða reykjamerki það er svo nostalgíst eitthvað.
Hugsanaflutningur er ekki langt undan Nykur minn góður og svo er aldrei að vita með þennan gerfiraunveruleika (virtual reality) kannski verður hann einhverntíman betri en raun-raunveruleikinn.
Ekkert IRC hér. Það myndi aðeins færa spjallið á lægra plan og lækka meðal-greindarvísitölu Heimavarnaliðsins.
Sem er ekkert alltof há til að byrja með.
Mér sýnist að þinn heili sé annað hvort gríðarlega stór, eða að þú sért með hairdo dauðans...
Ég leyfi mér að draga þær ályktanir sem mér sýnist. Og ég dreg inn lykt á slíkum hlutum ef þér er sama.
Hvað hét aftur lagið þarna sem fjallaði um að rugga bát?
Eitthvað held ég að slíkt myndi hafa áhrif á þjóðarframleiðsluna.
Það er rétt minn kæri Úrsus, auðvelt er að finna þetta út með Keynsíska hættinum:
Y=c0Y-c1T+b0+b1Y-b2i+G
þeir sem vilja leggja LM ferilinn við verða þá að beita:
M/P=YL(i)
Hvað hét aftur lagið þarna sem fjallaði um að rugga bát?
Var það ekki Marley gamli sem átti lag um það?