— GESTAPÓ —
Velkomin, lömbin mín
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3, 4 ... 140, 141, 142  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/10/03 20:26

Það er hjer með gert opinbert að vjer erum fyrsti laumupúki októbermánaðar.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 1/10/03 20:29

Og rjett er að bæta við til að fyrirbyggja að sagnfræðingar ársins 2103 (eða 2203) misskilji eitthvað að um er að ræða október 2003. Þ.e.a.s. ef skjalasöfn Baggalúts, og þá þar með talið það er hjer fer fram, verða eigi lokuð á næstu öld vegna höfundarrjettarákvæða og/eða óæskilegra pólitískra skoðana sagnfræðinga framtíðarinnar.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 1/10/03 22:11

Fyrst við erum að læðupokast.

Það væri nú ekki ónýtt fyrir hana Auði að komast í bréfin sem Halldór ákvað að treysta henni ekki fyrir. Það sem ég kýs að kalla 'hin bréfin' og eru geymd á góðum stað.

Hvað segið þið um það?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 2/10/03 09:44

Það þykir mér góð hugmynd, sérstaklega ef valdir kaflar væru byrtir hér á vef sannleikans, þó ekki væri nema bara til að vesalings Hannes geti klárað bókina sína.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 5/10/03 23:19

Það væri gaman að fá að kíkja í það, laumupokarnir mínir...en haldið þið að "Aumingja" Hannes lesi lútinn sinn?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 6/10/03 14:40

Eðli mannsins samkvæmt þykir mér ólíklegt að hann lesi vef sannleikans.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlíus prófeti 6/10/03 17:50

Glúmur mælti:

Eðli mannsins samkvæmt þykir mér ólíklegt að hann lesi vef sannleikans.

Eðli málsins samkvæmt tel ég að hann sé yfirleitt ekki læs, hef enda heyrt að hann hafi notið dyggrar aðstoðar ömmu sinnar heitinnar við rit doktorsritgerðar sinnar. ‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 7/10/03 11:02

...en hvað finnst ykkur um það að Guðni Ágústs vill að eldislaxinn fari til Færeyinga...er eitthvað gruggugt í gangi?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlíus prófeti 7/10/03 12:10

Burtséð frá því hvort eitthvað gruggugt sé í gangi, þá tel ég að grípa ætti tækifærið, fyrst á annað borð er verið að senda þessa vesalings fiska þangað, að ráða þá til vinnu, og þjálfa nokkra þeirra til njósnastarfa. Færeyingar eru að ég held að færa sig upp á skaptið, hefur jafnvel heyrst að þeir hafi í fyrsta sinn úthlutað kennitölu til handa einum heppnum Færeyingi. Fyrst þeir eru komnir með kennitölur, hvað næst? Ógnin er greinileg, mæli með tafarlausum viðbrögðum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 8/10/03 08:55

Ég er fylgjandi því að baggalútar komi sér upp flota af ryksugu-kaf-togurum til að stela frá þeim öllum fiskinum, svona rétt til að minna þá á mátt okkar.

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 8/10/03 09:57

Þetta er náttúrulega mín snilldar hugmynd en hvernig væri að bæta um betur og gera einnig Djúpsjávar hvalveiðiskip með Olíuborbúnaði og svo kafdæluolíubirgðarskip. Þannig að það eina sem við þurfum að gera til viðbótar er að ræna Brandi Enni og Kyrrsetja Færeysku Þjóðlagastelpuna. Þá hafa færeyingar engar útflutningsvörur og við Íslands eina þjóð verðum konungar norður Atlantshafsins.

Svo er bara næsta skref að ráðast á Noreg með sömu bellibrögðum. Síðan Grænland, Kanada og Austurströnd Bandaríkjanna.

Ísland lengi lifi. HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 8/10/03 10:04

Ef á annað borð er farið út í svona aðgerðir væri þá eigi ráð að leggja bara undir sig allan heiminn í leiðinni ? Það tekur því eiginlega eigi að vera að ráðast eingöngu á þessi smásker í kringum oss.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 10/10/03 08:41

Kæru félagar við lifum á vályndum tímum, þýzkuskotin íslenzka er að ríða hér öllu að fullu og það virðist sem stjórn Bagga.lúts kæri sig kollótta um mannskemmandi áhrif hennar. Það er jú vitað mál að þýzkukunnátta er í öfugu hlutfalli við gáfnafar svo að eftir því sem menn og apakettir hér á Baggalút læra fleiri þýzk orð, þeim mun gáfnasnauðari verða um.ræðurnar.
Það virðist því með öllu ljóst að koma verður á laggirnar andspyrnuhreyfingu innan Bagga.lúts sem hefur það eina markmið að binda endi á þýskuslettur hér á vefnum.
Við munum ekki hverfa þöglir inn í nóttina, við munum þrauka! Áfram íslenzkan!

Gagnvarpið er komið til að vera
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 10/10/03 18:20

tjah, sjálfur hef ég varla þorað að senda nokkuð hingað inn að undanförnu vegna hræðslu um að þýskumaskínan hreinlega traðki á hinu endalaust fallega tungumáli okkar... ‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/10/03 10:15

Það er reginhneyksli að hjer á þessum umræðuvettvangi laumupúka skuli eigi neitt hafa verið skrifað í 5 daga og er þessu skeyti ætlað að bæta úr því ófremdarástandi.

Jafnframt vekjum vjer athygli á að þessi umræðuþráður er tilvalinn fyrir drauga og afturgöngur (sem e.t.v. vilja eigi láta of mikið á sjer bera) til að láta ljós sitt skína.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 15/10/03 20:11

Þakka þér kærlega fyrir þetta Vladimir minn, ég var farinn að sakna þessa þráðs.. ‹Glottir sykursætu brosi›

..einnig mjög góð tillaga með að leyfa afturgöngum og annarskonar skríl að koma hingað að tjá sig ‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 15/10/03 20:38

Hvað með útbrunna leikara?
‹Brestur í óstöðvandi grát›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Feiti Einbúinn 15/10/03 21:28

hvaða hvaða ?

Chevy Chase er ekki útbrunnin, hann er aðeins í dvala.. ‹Ljómar upp›

        1, 2, 3, 4 ... 140, 141, 142  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: