Ég er á þeirri skoðun að Katanesdýrið myndi sóma sér vel á skjaldarmerkinu og auk þess yrði það fyrirmyndar verndardýr ríkisins.
Hvað tákna svo litirnir?
Nei nei nei, kunnið þér ekkert í skjaldarmerkjafræðum? Helsta grunnatriði fræðanna er að litur má aldrei snerta lit og málmur aldrei málm. Tillaga yðar er öll samsett úr litum, og brýtur þar með þessa grundvallarreglu oftar en einusinni.
Litir:
Sable (svartur)
Gules (rauður)
Azure (blár)
Vert (grænn)
Purpure (fjólublár)
Málmar:
Or (gylltur/gulur)
Argent (silfraður/hvítur)
Þetta sama á við um þjóðfána. Íslenski þjóðfáninn uppfyllir einmitt þessi skilyrði: silfrið skilur bláan og rauðan að. Og allir fánar norðurlandanna uppfylla þessi skilyrði með sóma, nema einn. Hver þá? Jú, sá færeyski.
Og þeim viljið þér líkjast! Þetta er nú nánast óafsakanlegt.
Mikið er Ursus fróður. Mér dettur samt í hug að spyrja .... er þetta azure, eða er það kóbaltblátt? Og er ekki kóbalt málmur? Hvaða reglur gilda um þetta, þá?
Og á meðan ég man það: af hverju heitir ekki kóbalt púkamálmur?
Starir þegjandi út í loftið, hugsi á svip
Jú þetta er áhugavert en væri þetta skemmtilegra sem flagg nú erum við komnir með ágætt skjaldarmerki sem er að vísu ekki fullklárað Bölvar Árna J. fyrir seinaskapinn
Hér er ein tillaga. Þetta var soðið saman á um 10 mínútum, svo eflaust er hægt að gera betur.
Hér er ein tillaga. Þetta var soðið saman á um 10 mínútum, svo eflaust er hægt að gera betur.
Myndarlegt merki, en hvernig væri að skipta út þessu lambi fyrir fallegan hest. Ljómar upp
Mér þykja menn vera búnir að gleyma því hvað Baggalútía er. Hún er fyrirbæri sem lýtur engum öðrum lögum en þeim sem sett hafa verið í Baggalútíu og þess vegna má skjaltarmerkið vissulega brjóta allar fyrirfram setta reglur annars staðar!

Sammála, nema stafsetningarreglur og það má því eigi kallast "skjaltarmerki".
aff kerju aetum vi' að lúda úndan staffsettninngarglum anara?
aff kerju aetum vi' að lúda úndan staffsettninngarglum anara?
Hún er á Flókagötu en það er sennilega búið að loka núna.
Nei nei, ef þú vilt almennilega lúðu verðuru að fara í kínahverfið!
Kínahverfið í hvaða borg ?
Ákveður að endurvekja þennan þráð Æi. ég sé ekki merkið hans Úrsus. En hefur einhver niðurstaða komið í þetta mál?
Endurtekur spurninguna
Drekkur sig fullann