Komið þið hjartanlega sæl og blessuð öll sömul, það gleður mig að þið hafið litið hingað inn. Hér sé ég mörg kunnugleg andlit, þó sum séu reyndar frekar flóttaleg.
Markmið þessarar stúku er að efla kristilegann lifnað og sporna við dýrkun bakkusar í hvaða formi sem hann birtist. Það er kominn tími til að góðborgarar Baggalútíu láti til sín heyra og gjöri líðnum sem öllu leitar að spilla ljóst að skrílslæti og fautaháttur verður ekki liðinn í okkar friðsamlega samfélagi.
Ræðumönnum er frjálst að stíga í pontu og tjá skoðanir sínar - að því gefnu að það séu réttkristilegar skoðanir að sjálfsögðu.
Þeim sem eru þyrstir er boðið upp á egils appelsín eða kaffi og ætti að vera nóg handa öllum.
Gjörið þið svo vel.
Þeim sem eru þyrstir er boðið upp á egils appelsín eða kaffi og ætti að vera nóg handa öllum.
Gjörið þið svo vel.
Ég þekki mann sem getur breytt Egils appelsíni..................
Þetta finnst mér hið besta framtak. En þú ert ekki með neitt bakkelsi eða kruðerí með kaffinu Glúmur. Ég kem hérna með jólaköku, sykraðar pönnukökur og kandís til að hafa með þessu.
Er það skilyrði fyrir inngöngu í stúku þessa að vera eigi félagi í vínkúbbi Baggalúts ?
Var það ekki svo að við máttum blóta á laun þegar við tókum kristna trú hér um árið? Gætum við ekki allt eins verið góðtemplarar sem drekka á laun?
Var það ekki svo að við máttum blóta á laun þegar við tókum kristna trú hér um árið? Gætum við ekki allt eins verið góðtemplarar sem drekka á laun?
Hvernig er það má annað skurðgoð ryðjast hingað inn og segja mönnum hvernig best er að láta að Guði. Nei þetta er komið útí öfgar og líst mér nú aldeilis á það þegar að barátta guðana er farin að leggjast það lágt að almúginn er vísvitandi neiddur til þess að taka þátt.
"Kristilegu kærleiksblómin spretta
kringum hitt og þetta"
Halldór Kiljan Laxnes
"Kristilegu kærleiksblómin spretta
kringum hitt og þetta"
Halldór Kiljan Laxnes
Fáðu þér snafs Skabbi minn. laumar viskípelanum til Skabba undir borðinu.
Það er fyrir neðan allar hellur að ætla að kristið fólk séu eitthvað meiri fýlupúkar eða séu fremur aðrir bindindismenn. Nei, því fer fjarri, enda snýst drykkja á engan hátt um trúarbrögð né trúariðkanir. Aðalatriðið er að ef menn ætla á annað borð að stunda áfengisdrykkju er það hófdrykkja sem gildir. Það er einnig afar mikilvægt að hafa í huga að drykkja skal ekki höfð börnum í frami. Ungar sálir skulu fá að þroskast áður en þær takar afstöðu til áfengisdrykkju. Því segi ég : Mætið í fermingar, Bar Mitzvah og hverjar þær athafnir þar sem börn verða að ungu fólki og hafið með ykkur eina kippu af Thule. Bjóðið svo þessu unga fólki að taka ákvörðun sjálft. Ef bjór hæfir ekki smekk, er ráð að taka einnig með eins og eina hvítvín og eina rauðvín. Sterkt vín er yfirleitt ekki ráðlegt. Prufið þetta og hættið að vera hræsnarar.
Taki til sín sem eiga.
-
Fáðu þér snafs Skabbi minn. laumar viskípelanum til Skabba undir borðinu.
Jah...eigum við ekki allavega að þykjast vera stúkumenn þegur við erum staddir á þessum þráði Þakka þér kærlega fyrir ávaxtasafann Haraldur minn...
Dansar vikivaka í dimmu horni sem mest hann má
Nei veistu mér lýst ekkert á þetta. Ég hef heyrt um þjóðir sem hafa gert svona lagað, hætt að þamba humlavatn, látið sér vaxa skegg, hætt að horfa á vestrænar kvikmyndir og almennt skemmta sér og Púff! Áður en þú veist af hefur Ameríkan bombað þér til frelsis. Ég kem ekki nálægt þessu, þessi Slipknotfan13 ætlar ekki að fá eina breska í kollinn. Nej Tack!
setur á sig hringinn læðist laumulega að kaffibrúsanum og hellir koníaki í, hleypur út tekur af sér hringinn og röltir aftur inn.
Neihh sælt veri fólkið hvað segiði voða falskur Jahh ætli maður fái sér ekki bara kaffi, ha hvar er brúsinn. klórar sér í höfðinu og svipast um Þarna er hann jájá ég fæ mér einn bolla. Allaveganna.
Ég er nú afar kristinn maður
Er einmitt að lesa um núna þegar Frelsarinn breytti vatni í vín.
Merkilegur hæfileiki!
Röltir upp í kirkju í smá messuvínssopa með prestinum
Það hlýtur nú að vera í lagi að það sé smá kaupstaðarlykt af manni, annað væru ofsóknir.
Skabbi minn, áttu meira appelsín?
Þetta er nú auma innskráningarkerfið Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hvaða djöfuls þvaðurumræða er þetta?
Og þar með voru allar stúkur í Baggalútíu aflagðar með öllu og bannaðar með lögum.
ja hérna? fær sér annan kaffibolla.