Ég var að heyra í fréttum að joðskortur í fæðu væri vandamál í ýmsum þróunarlöndum. Datt í hug hvort ekki væri rétt af Baggalútíu að senda þeim svolítið kjet.
Ég tek þátt í þessu góða málefni og sendi frá mér JJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ eða 34 Joð.
pakkar þeim snyrtilega saman og röltir að næsta pósthúsi.
Það eru ekki bara þróunarlöndin sem þjást af joðskorti. Ítalir eru einnig sárþjáðir þar sem þeir hafa ekkert joð í máli sínu heldur skrifa það sem GI, sbr. Giovanni (Jóhann) og Giuseppi (Jósep).
Vér erum reiðubúnir að gefa eitthvað af kjúklingum, járni, jójóum, bjór og bjarndýrakjöti.
Hvernig væri að kenna þessum j-skertu þjóðum að þróa eigin i í j?
Hvernig væri að kenna þessum j-skertu þjóðum að þróa eigin i í j?
Er einhver trygging fyrir því að slíkar þjóðir hafi i yfir höfuð?
Sendum þeim Þorstein J er nokkuð verið að nota hann lengur?
Sendum þeim Þorstein J er nokkuð verið að nota hann lengur?
Nei, ég hef líka heimildir fyrir því að kona hans sé meira að segja hætt að nota hann.
Ég legg til að allar Júmbó samlokur sem komnar eru á síðasta dag verði sendar út. Ef það er svo einhver afgangur af jólaöli þá er tilvalið að láta það fljóta með.
-
Hérna er joð atóm handa þeim.
Þeir hljóta að þurfa meira en eitt atóm, annars dugir þetta bara fyrir einn móttakanda. Ef skipta á þessu atómi milli margra manna verða það einhver önnur efni, t.d. nokkrir tugir vetnisatóma, en þá er alveg eins hægt að senda þeim vetni í stað þess að nota það á strætisvagna. Einnig gæti orðið um að ræða stakar prótónur, nevtrónur, elektrónur o.s.frv. eða jafnvel að kljúfa þær niður í kvarka til að unnt sé að skipta atóminu milli enn fleiri móttakenda. En í þessum tilvikum er eigi um að ræða joð.

Hægt er að splitta geisla sem samanstendur af einu atómi í tvennt og þar með tvöfalda magn atóma eitt í einu.
segjum þeim að gefast upp fyrst, svo fá þau joðið
Ekki má gleyma að senda þeim Steingrím J, þann erkinöldrara og skallakóng...
Ég var að heyra í fréttum að joðskortur í fæðu væri vandamál í ýmsum þróunarlöndum. Datt í hug hvort ekki væri rétt af Baggalútíu að senda þeim svolítið kjet.
Leyfum þeim bara að stafa fæði með J þannig verður aldrei aftur Joðskortur í fæði í þróunarlöndunum. FJÆÐI. Ljómar upp
Það er nokkuð augljóst hvers vegna þú fékst að vera Forsætisráðherra. Þú ert maður með lausnir.
Horfir með stollti til Forsætisráðherrans
-