Ég hef hérmeð ákveðið að taka í notkun nýjung í fólskumálum hér á Íslandi.
Þetta er að vissu leyti brautryðjendastarfsemi enda með öllu staðsett fyrir utan svið mannlegs siðferðis.
Af engri merkjanlegri ástæðu hef ég byrjað að skipta út heilum eldri borgara fyrir fjarstýrða tölvukubba undir minni stjórn. Ég hef skipað siðspilltum undirmönnum mínum að fjarstýra þessum eldri borgurum til þess að vera sem óviðkunnanlegustum í fasi og framferði. Heilarnir verða síðan settir í einn stóran geym sem fylltur verður af heilavökva og verður þeim haldið þar lifandi með hjálp kóbalts. Þessi heilafyllti geymur mun síðan verða miðverkið í nýrri ofurtölvu sem ég með í smíðum. Vonast ég til að þessi tölva muni hjálpa við að finna upp á litríkum nýjum fólskuverkum á komandi ári.
Ykkar elskulegi fólskumálaráðherra,
Blástakkur

Verður þetta ekki þá mjög treg ofurtölva sem er alltaf að dotta og skilur hluti illa.??
þetta verður ofurtölva með smekk fyrir sherrý og áhuga fyrir laugardagskvöldi með Gísla Marteini. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.

Ógnin á sér engin takmörk.
Þegar að öllu er svo á botninn hvolft, væri commodore 64 ekki meiri ofurtölva en þín ofurtölva.
Í mér býr fól.
Það er gott að heyra, ekki væri nú gott að vita af honum á götunni eins og leigumarkaðurinn er í dag!
Ég hef hérmeð ákveðið að taka í notkun nýjung í fólskumálum hér á Íslandi.
Þetta er að vissu leyti brautryðjendastarfsemi enda með öllu staðsett fyrir utan svið mannlegs siðferðis.
Af engri merkjanlegri ástæðu hef ég byrjað að skipta út heilum eldri borgara fyrir fjarstýrða tölvukubba undir minni stjórn. Ég hef skipað siðspilltum undirmönnum mínum að fjarstýra þessum eldri borgurum til þess að vera sem óviðkunnanlegustum í fasi og framferði. Heilarnir verða síðan settir í einn stóran geym sem fylltur verður af heilavökva og verður þeim haldið þar lifandi með hjálp kóbalts. Þessi heilafyllti geymur mun síðan verða miðverkið í nýrri ofurtölvu sem ég með í smíðum. Vonast ég til að þessi tölva muni hjálpa við að finna upp á litríkum nýjum fólskuverkum á komandi ári.
Ykkar elskulegi fólskumálaráðherra,
Blástakkur
Gengi þessi tölva fyrir sveskjugraut og Metamucil?
Það væri hægt að koma því þannig fyrir. En aðallega myndi þetta ganga fyrir harmonikkutónlist og spaugstofubröndurum. Einn af heilunum myndi sjá um samhæfingu og hef ég valið að hafa það heilann úr Ómari Ragnarssyni.
Fólska yðar og snilli er hreint til fyrirmyndar, hæstvirtur fólskumálaráðherra! Ég legg til að úrgangi úr þessum fólskuvélum sé umbreitt í ullarsokka,
ullarnærboli og jafnvel ullarnærbuxur ef mikið liggur við! Afurðir þessar mætti svo senda afkvæmum andstæðinga baggalúts á jólum, afmælum og við önnur hátíðleg tilefni!! Illskan á sér engin mörk!!!
Hvernig verður því hagað að smala eldri borgurum til verksins? Verða þeir "sjanghæjaðir" nú eða keyptir? Get ég nú loksins selt ömmu mína?
Þú færð kassa af bjór og frímiða í bíó fyrir kellinguna...
Undirsátar mínir koma einfaldlega eftir pöntun og fjarlægja umræddan einstakling á "leynilegan" hátt. Þ.e. þeir koma í svörtum úníformum með byssur og skriðdreka og hóta að sprengja allt hverfið ef fólk beygir sig ekki undir vilja þeirra. Leynilegi parturinn felst í því að þeir eru allir leynilega klæddir í kvenmanns undirföt.
Hafþór Hubner hefur óskað eftir að ganga til liðs við sveitina og óskar eftir bleikum nærfötum...helst með blúndum.
Undirsátar mínir koma einfaldlega eftir pöntun og fjarlægja umræddan einstakling á "leynilegan" hátt. Þ.e. þeir koma í svörtum úníformum með byssur og skriðdreka og hóta að sprengja allt hverfið ef fólk beygir sig ekki undir vilja þeirra. Leynilegi parturinn felst í því að þeir eru allir leynilega klæddir í kvenmanns undirföt.
...Og snilldin er að sjálfsögðu sú að njósnarar óvinarins eru klæddir í kvennmanns ullar-nærföt sem þeir fengu í jólagjöf frá "ömmu" sinni, sem þarmeð kemur upp um þá!!! hlær mjög ósannfærandi illum hlátri
Hreyfing óvina vorra er svo sundurleit að þeir koma yfirleitt upp um hvern annan áður en vér gerum það.
Mínir menn hafa líka vit á því að klæðast klassískum svörtum "lace" undirfötum sem gerir þá illsjáanlega í myrkri ef fólk er á annaðborð illa sjáandi.