Ungur var ég æðrulaus
ekkert fjör var það nú
En frillulíf í Kína kaus
sem kynvera og baðfrú.
Er furða þótt stórskipin strandi
ef stunda þau veiðar á landi?
Er furða þótt stórskipin strandi
ef stunda þau veiðar á landi?
Fjaran þótt fleyinu grandi,
fær Samherji bætur, sá fjandi.
Loðnan í lestinni úldnar
lyktin er næringarík.
Loðnan í lestinni úldnar
lyktin er næringarík.
Konur við körin svo bústnar
kætast, gleðin er slík.
Þær nenn´ekk´jað þurfa að vinna
en þora samt alls ekki heim.
Þær nenn´ekk´að þurfa að vinna
en þora samt alls ekki heim.
Því gott er á skuldum að grynna
í gúmmísamfesting með reim.
Ef verða þær loðnar um lófa
Í loðnu með slímuga glófa
Kafloðnar þykja mér konur
kynþokkafyllstar vera
passa þig samt á þeim sonur
sumar þær skaufana bera
hormóna mormóna herfa
holdgerfðist bólinu í
hormóna mormóna herfa
holdgerfðist bólinu í
sódómans hugsanir hverfa
hausinn er kominn inní
Silli Brúni borubrattur
beygir sig og skorðar
Hormóna mor móna herfa
holdgerfðist bólinu í,
lætur til stáls óðar sverfa
sveittur hann verður af því.
----------------------------------
Vor í lofti vindur hlír
vorfuglar úti kvaka,
hmmmmmm..
Silli Brúni borubrattur
beygir sig og skorðar
fjandalega er hann fattur
fer samt heim og borðar.
Gengur burtu garpur hress
en gefur sig ei að konum.
Gengur burtu garpur hress
en gefur sig ei að konum.
Veriði hress ekkert stress, bless
Hemmi er á skotskónum
Farðu nú í fúlan pytt
fáskrúðsfífl og bytta
Farðu nú í fúlan pytt
fáskrúðsfífl og bytta.
Eigðu allt þitt klárt og kvitt
kunnirðu mig að hitta.
Franska daga forðum man
fullur eins og sæmir.
Franska daga forðum man
fullur eins og sæmir.
Fjandinn sko hirði franzman
fretandi vindhana spænir
Villt, væn og vingslaglöð
værukær og góð
Villt, væn og vingslaglöð
værukær og góð
Spillt, feit og fyrnastöð
fráleit semur ljóð
Grettir krókus glirnurnar
gulri móti sól
Grettir krókus glirnurnar
gulri móti sól
Glámur lótus girni bar
glettinn tuggði rjól.
Bít og klíp og káfa á brjóstum.
Böndum þarf að koma á mig.
.
Bít og klíp og káfa á brjóstum
böndum þarf að koma á mig.
Hamast eins og hani í gjóstnum
með hita yfir treití stig.
-------------------------------------------
Kaupakonan Gyða káta
kann á flestu skil.
Kaupakonan Gyða káta
kann á flestu skil.
Aukastuðli yfir gráta
allir hérumbil
Af er það sem áður var
aldnar lindir þverra
Af er það sem áður var
aldnar lindir þverra
Ég er úldinn sit við bar
ákavítið er verra
Djöfull skal ég sóta upp
skúrkugum vítisrjóma
Djöfull skal ég skjóta upp
skúrkugum vítisrjóma
smyrðu því á hár og hupp
hökuna, skegg og góma
Bulla fýsir bögumenn
böðlast grísir víða