hangikjöt er herrafæða
hitt er verra
að fasana er fínt að snæða
fyrir perra.
Hámar í sig Herbalæf
halur eftir jólin.
Ég stóðst ekki freistinguna, mér fannst bara svo nauðsynlegt að breyta þessu í stikluvik.
hangikjöt er herrafæða
hitt er verra
fábjánarnir fugla snæða
fjandinn sjálfur, enn sú mæða.
Hámar í sig Herbalæf
halur eftir jólin.
Við hann heldur kerling kræf
karlsins elskar tólin
Pikka ég á Packard-Hewlett
og píanóið Yamaha.
Þetta þykir mér kvikindislegur fyrripartur með eindæmum.
Pikka ég á Packard-Hewlett
og píanóið Yamaha.
Voffa tek og oní tojlett,
treð og hrópa "jahaha!"
Flinkur svíð ég sviðahausa,
Sörli horfir dapur á.
Flinkur svíð ég sviðahausa,
Sörli horfir dapur á.
Það stoðar ei að rexa og rausa
ræðst ég bráðum haus þinn á.
Hríðarkófið skelfir skelfir
skjálfta vekur, já og hroll
Hríðarkófið skelfir skelfir
skjálfta vekur, já og hroll
Fleiri en Sax- þeir eru elfir
í útlöndum, kom mér í koll.
Allt of lengi er að pikka
inn mín ljóð á tölvuna.
Allt of lengi er að pikka
inn mín ljóð á tölvuna.
Mæðulega á mús ég klikka
minnir helst á völvuna.
Lyklaborðið lem ég óður
legg fram að skrifa rétt
Lyklaborðið lem ég óður
legg mig fram að skrifa rétt
á þetta víst að vera? Of svangur til að botna, fannst þetta bara svo skondið að ég gat ekki annað en bent á þetta.
lyklaborðið lem ég óður
legg [mig] fram að skrifa rétt
svitna fingur sit ég móður
set á skjáinn gufublett
Hástuðluð ég hamra skeyti
heldur betur duga skal
Hástuðluð ég hamra skeyti
heldur betur duga skal
Lúsahausinn legg í bleyti.
Ljóða er þar mikið kal.
Í ljóði mínu er lítið bít.
Leggst ég nú í dvala.
Í ljóði þessu er lítið bít.
Leggst ég nú í dvala.
rjóður rembist ég og skít
með rassgati í bala
skæri eru skrapatól
skaddað geta bestu drengi
skæri eru skrapatól
skaddað geta bestu drengi
ef ég heyri garg og gól
gáfur þínar ekki rengi
Keikó öfug-uggi dó
ýmsir þetta harma
Keikó öfug-uggi dó
ýmsir þetta harma
Feitur göfug-guggi hló
gisna meður þarma.
Vantað´ áðan mig eitt mig
migið hérna kemur
Vantað´ áðan mig eitt mig
migið hérna kemurað geta á raftinn reitt sig
röskan hér sem semur
hérna sé ég mæta menn
merkissprund og kiðlinga
[sem að munu eflaust enn
ætla að semja kviðlinga]
Listavel hér valsa um
í vísnagerðardansi.
Sálin gerist gömul hrum
gáðu að því mansi.
[réttilega er kveðið krummo, en þú hefur ruglast aðeins í fimbulfambinu og tekið fyrripart neðst af fyrstu síðu. BP]
Nú er úti næðingsvindur
neglingsfrost og kuldaél,
Nú er úti næðingsvindur
neglingsfrost og kuldaél,
Upp´ í fjalli krókna kindur
kýrnar drekka hanastél.
Loppinn er á lúkum smalinn
leitar einn að sínu fé
Hér ku vera gott framtak er litið hefur dagsins ljós...
Loppinn er á lúkum smalinn
leitar einn að sínu fé
snjóinn kafar, illa kalinn
karlinn upp að hné
ráfar smalinn rænulaus
rollur engar sér
ráfar smalinn rænulaus
rollur engar sér.
Þolir lítið, hænuhaus,
heimskur er og þver.
Smalinn dettur dauður niður,
döpur eru örlög hans.
Smalinn dettur dauður niður,
döpur eru örlög hans.lömbin jarma loks er friður
léttstíg dansa Ósla-skans
Hrafninn sér á hræi gæðir
hlakkar Muninn þá