— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 6, 7, 8 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/1/04 01:29

Þykir mér nú kveðið kalt
kulda að mér setur
drekka skaltu mikið malt
margt þá gengur betur

Nitótíni nös í treð,
nærast höfuðstöðvar

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 17/1/04 04:09

Nitótíni nös í treð,
nærast höfuðstöðvar
Andinn lifnar, örvast geð
eflast heilans vöðvar.

Síðan fæ ég sopa af áka,
sjón og minni hressast.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/1/04 04:24

Síðan fæ ég sopa af áka,
sjón og minni hressast.
Skot í anda Lukku-Láka,
-loksins allt þá blessast

stuðlafótum stökkvum á
stiklum kvæðafljótin

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 17/1/04 04:38

Stuðlafótum stökkvum á
stiklum kvæðafljótin
Á bakkanum handan bíður þá
barmafögur snótin.

Gør så her min gode ven:
gerðu botn á dönsku:

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 17/1/04 04:43

Gør så her min gode ven:
gerðu botn á dönsku:
hvis jeg drykker en og en
yrki brátt á frönsku

Íslensku ég unni mest
eitthvað þó að slettist

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 17/1/04 21:09

Íslensku ég unni mest
eitthvað þó að slettist
þó er sem mér þyki best
að þjarka sitthvað fettisht

leðurólar olía
ekta spandex galli

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 17/1/04 23:23

Leðurólar olía
ekta spandex galli
Svipa og svarthol í A
á sveita-kinkí-balli.

Djörf nú gerist dansmenntin
drengir aðra vanga.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Schultz 18/1/04 01:26

Djörf nú gerist dansmenntin
drengir aðra vanga.
Lógur óvart lenti inn
léttur vildi spranga

Kalli Bjarni ædol í
óður vildi syngja

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 18/1/04 04:02

Kalli Bjarni Idol í
óður vildi syngja.
En hafði munni óþol í
og erfitt með að kyngja.

List ég varla kalla að keppa
í karaókí

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 18/1/04 15:30

Nýt ég hverrar nótu hjá
Nina Hagen band
Yfir kaldan arka þá
eyðisand

Útvarpshöfuð ætla vil
öðrum böndum fremri

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 18/1/04 18:27

Útvarpshöfuð ætla vil
öðrum böndum fremrief ég heyri tóna til
trega finn þá skemmri

Rammstein einnig reynist vel
rámur Megas líka

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 18/1/04 21:00

Rammstein einnig reynist vel
rámur Megas líka.
MA-kvartett yndi tel,
öðrum síður flíka.

Skömm er að skallapoppi,
skröltandi gamalmennum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 18/1/04 22:34

Öfugur er Eminem
að Eltann Jón
Viltu, spurð´ann vera memm
veslings flón?

Britney hún er brjóstgóð pía
berlega það sýnist mér

 • LOKAР•  Senda skilaboð
venni vinur 18/1/04 22:45

Britney hún er brjóstgóð pía
berlega það sýnist mér
Í faðmi hennar finnst sú hlýja
sem að flestir óska sér.

Díana Ross er dýrlegt hnoss
er dífan hossar bossa.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 19/1/04 00:16

Díana Ross er dýrlegt hnoss
er dífan hossar bossa.

fljót í glossið ganga hross
gossa foss með blossa

eitt er það sem ekki má
öðru fremur gera

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 19/1/04 00:21

eitt er það sem ekki má
öðru fremur gera
Ganga yfir götu á ská
glaðbeittur til mera.

Hérna finn ég fiski-
fýluna af diski

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 19/1/04 01:31

Hérna finn ég fiski-
fýluna af diski
eldi humar hyski
hlýst af tómur miski

Koma saman Kolla,
kroppinbakur, Solla,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 19/1/04 01:49

Þríhyrningsins hornasumma
er hundrað og áttatíu
en portkonur prúðar humma
er plokka og hátta tíu

pútnamamman mikilvirk
mátti summur þekkja

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 6, 7, 8 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: