Hér er hægt að leggja inn góð og gild húsráð öðrum til aðstoðar og eftirfylgni.
Nykri datt þetta í hug þegar í gærkveldi kjölurinn datt af einni uppáhaldsbók Nykurs sem er Bör Börsson fyrra bindi en Nykur festi hann á að nýju með sílíkoni og viti menn bókin er sem ný!
Hér er eitt gott húsráð fyrir þá sem eiga eitthvað eftir af jólaölinu frá því um jólin. Bætið slatta af sykri útí mjöðinn og skellið vatnslás á. Setjið dunkinn uppað sæmilega heitum ofni og látið malla í nokkrar vikur...ætti að verða vel drykkjarhæft í lok Þorra. Fyrir þá sem ekki eiga vatnslás, þá mæli ég með því að þeir útvegi sér glæra plastpípu, helst tvíbogna, festið annann endann á pípunni í tappann á dunkinum með því að gera gat og teipa eða líma fast, þannig að einungis andi um pípuna. þar sem pípan er tvíbogin þá ætti að vera hægt að setja vatn í bugðuna sem hefur myndast og þannig orðinn til þessi fíni heimasmíðaði vatnslás.
Fyrir þá sem ekki eiga vatnslás, þá mæli ég með því að þeir útvegi sér glæra plastpípu, helst tvíbogna, festið annann endann á pípunni í tappann á dunkinum með því að gera gat og teipa eða líma fast, þannig að einungis andi um pípuna. þar sem pípan er tvíbogin þá ætti að vera hægt að setja vatn í bugðuna sem hefur myndast og þannig orðinn til þessi fíni heimasmíðaði vatnslás.
Einnig er hægt að nota granna slöngu eða rör, festa annan endann í kútinn eins og áður er lýst og hinn ofan í vatnsglas.
Eða sleppa hvorutveggja og fá þannig góða lykt í íbúðina.
eða fara ennþá lengra og búa til sinnepsgas til að sniffa.
Fyrir peningaþurfi.
Ég heyrði einhversstaðar um elgi sem urðu dauðadrukknir af því einu að borða ávexti sem búnir voru að gerjast.
Takið epli
hafið það við stofuhita
Leyfið því að gerjast
voilà! þið eruð komin með vímugjafa!
Fyrir peningaþurfi.
Ég heyrði einhversstaðar um elgi sem urðu dauðadrukknir af því einu að borða ávexti sem búnir voru að gerjast.
Takið epli
hafið það við stofuhita
Leyfið því að gerjast
voilà! þið eruð komin með vímugjafa!
Þetta virkar líka með fisk.
Vínber líka...
Vínber líka...
Eru það ekki bara sprautufíklar sem nota þau.
Annað gott húsráð er að klína tyggjógúmmí í hár systur sinnar, hafa þarmeð fína afsökun til að klína líka hnetusmjöri í hárið hennar. En eins og allir vita er hnetusmjör það eina sem almennilega nær tyggjógúmmí úr hári án þess að skemma hárið.
-
Hmm ..góð húsráð já. Þegar tiltektin hefur vaxið mér yfir höfuð þá hef ég gripið til þess einfalda ráðs að henda húslyklinum og flytja annað. Það hefur alltaf rótvirkað.
Hægt er að fá nóg að sofa hjá hægri/vinstri, drekka og éta frítt í sólarlandaferðum. Þetta er þó ekki hægt ef þér eruð karlkyns.