— GESTAPÓ —
Barnamatur
» Gestapó   » Almennt spjall
        1, 2, 3  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
salvador 19/8/03 11:13

Sem var jú sem alþjóð veit skýrð eftir brjótsykrinum góða frá Opal !¨, , ,

Salvador; Löggiltur SKRÓPAGEMLINGSMEISTARI gestapó
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Blástakkur 19/8/03 12:58

Ég hef komist á þá niðurstöðu að það er til önnur vídd sem skarast við okkar vídd; svonefnd nefnivídd sem veldur óheyrilegum skaða og píningum þegar íbúar hennar reyna að troða sér inn í okkar vídd. Allur svona nafnaruglingur hlýtur að stafa útfrá illum og ísmeygilegum klækjabrögðum þessara nefnivíddarillvirkja.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
finnurtg 19/8/03 15:01

Barbapabbi mælti:

Börn borða barnamat,
maður er það sem maður borðar,
þar af leiðir að börn eru barnamatur og menn sem borða börn hljóta að verða börn.
Erum við e.t.v. búnir að uppgötva æskubrunninn... eða hversu hátt hlutfall barna eru síungir öldungar af barnamatsáti?

Þessi kenning fellur um sjálfa sig því ef börn eru barnamatur hljóta barnaætur að verða að barnamat í kjölfarið, fjandakornið!

‹Grípur um vit sér og kastar upp af innlifun›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dr Zoidberg 19/8/03 15:05

Þetta er vitleysa, ég var að prófa börn og þau bragðast hvorki eins og barnamatur eða kjúklingar. Bragðið minnir helst á rauðsprettu, en smá keimur mynnir helst á svínakjöt. Sennilega er best að velta þeim upp úr hveiti og pönnusteikja við snarpan hita, kryddið eftir smekk. ‹Stríkur ístruna og gefur frásér vellíðunar stunu›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 20/8/03 01:13

finnurtg mælti:

Barbapabbi mælti:

Börn borða barnamat,
maður er það sem maður borðar,
þar af leiðir að börn eru barnamatur og menn sem borða börn hljóta að verða börn.
Erum við e.t.v. búnir að uppgötva æskubrunninn... eða hversu hátt hlutfall barna eru síungir öldungar af barnamatsáti?

Þessi kenning fellur um sjálfa sig því ef börn eru barnamatur hljóta barnaætur að verða að barnamat í kjölfarið, fjandakornið!

‹Grípur um vit sér og kastar upp af innlifun›

En á endanum verður þetta bara barnamatur sem borðar barnamat í fullkomnu jafnvægi enda börn = barnamatur. Barnið/barnamaturinn verður einungis að gæta sín á að vera ekki étið um alla eilífð.... Tekið skal fram að ég geri ráð fyrir að hér sé um óunnar og alferskar kjötvörur að ræða en ekki eldað að hætti dr.Zoibergs
‹Starir út í tómið›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 13/11/03 11:12

Ömmu pizzan var köld í gærkvöld

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/11/03 11:49

Nei en gaman, hjer er orðinn til nýr laumupúkaþráður sem er betur falinn en hinn því hann er alveg neðst. Ekkert kemur þó í stað hins eina sanna laumupúkaþráðs. Hins vegar vekur það nokkra undrun vora að enginn virðist hafa uppgötvað laumupúkaþráð vorn er vjer hófum tilraun með fyrir nær viku.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/11/03 13:14

Ég hélt ég væri með alla laumupúkaþræði á hreinu...hvar er sá?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 13/11/03 13:21

Laumupúkar laumupúkast ekkert með laumupúkaþræði en kannnnnnnnski laumupukrast þeir með slíka þræði!!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Órækja 13/11/03 14:01

Það er ljót að laumupúkast og segja engum frá því!

Skrifandi undir síðan 2004
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 13/11/03 14:12

Órækja (kannski Snorrason) mælti:

Það er ljót að laumupúkast og segja engum frá því!

hvar er Bergljót þá??

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/11/03 21:11

Skabbi skrumari mælti:

Ég hélt ég væri með alla laumupúkaþræði á hreinu...hvar er sá?

Í samræmi við eðli slíkra þráða erum vjer tregir mjög að upplýsa um þetta en minnum þó á atburði í Krýsuvík síðsumars.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 13/11/03 21:17

Ég hugsa að ég finni hann fyrir rest...ef einhver laumupúkast þar :)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 2/12/03 00:03

En ekki hvað

og vhurnig gengur svo leitin Skrabba ekki-skömm

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glúmur 3/12/03 12:48

víða finnast laumupúkarnir ‹Geislar himinbláum ljóma›

Gagnvarpið er komið til að vera
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/03 15:19

Það er alltaf gaman að laumupúkast í góðra manna hópi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Albert Yggarz 7/12/03 19:42

það held ég að þarna í þessum orðum þínum leynist laumupúka sannleikur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 7/12/03 20:37

Hvað finnst ykkur um nýju myndina af mér, ég ver búinn að fá leið á þeirri gömlu og hélt að þessi myndi lífga upp á spjallið...en held ég hafi gert mistök.

LOKAÐ
        1, 2, 3  
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: