Ef maður hefur smekk fyrir Meistaranum og Margarítu þá er ekki ósniðug hugmynd að lesa Örlagaeggin... það er snilld.
Já Meistarinn og Margaríta er afbragðslesning. Hlakka til að sjá leiksýninguna.
Lestu Riddarinn sem var ekki til eftir sýrða Ítalann Italo Calvino.
Einnig bendum vér á að lesa góða, fræðilega umfjöllun um hvernig nota beri tilvitnanir svo þér getið vitað hvort bækur þær er þér síðar lesið séu góðar eður ei.
Svo getur þú alltaf lesið Rauðu seríuna. Komist í snertingu við þinn innri kvenmann/homma.
-
Ofsögum sagt og aðrar bækur eftir Þórarin Eldjárn.
Já Meistarinn og Margaríta er afbragðslesning. Hlakka til að sjá leiksýninguna.
En hvað með Hundshjarta? Eða hvernig hún er þýdd. Góð bók, og bráðskemmtileg leiksýning í Tjarnarbíói í fyrra.
Og bók Bergsveins fannst mér snilld.
"the hitchhikers guide to the galaxy" eftir Douglas Adams er stórsnilld. Svo er "Hlutabréf og eignastýring" eftir Sigurð B. Stefánsson góð til að koma sér í gott skap.
Einnig má benda á "Discworld" seríuna eftir Terry Pratchett, svo og bókina "A Bridge Of Birds". Því miður er nafn höfundar dottið úr mér...
Ég mæli reyndar með Mein Kampf eftir Adolf Hitler. Þetta er mjög hugljúf bók og fagrar lýsingar hennar á hinum ýmsu möguleikum sem til eru í lífinu veita manni andagift.
Áttu ekki við bókina Kein amp eftir sama höfund. Um baráttu hans við Das Ägyptisches Museum und Papyrussammlung?
Da Vinci lykillinn, ætti að banna svona góðar bækur með lögum
Auðvitað áttu að lesa Furstann eftir Machiavelli, þ.e. ef þú ert ekki búinn að því.
Ég geri ráð fyrir allir háttsettir menn í Baggalútíu hafi lesið þá merku bók.
Nú sem léttara skemmtiefni er alltaf gott að renna aftur í gegnum Morgan Kane safnið. Það hefur líka fallegan móralskan boðskap
Ég mæli reyndar með Mein Kampf eftir Adolf Hitler. Þetta er mjög hugljúf bók og fagrar lýsingar hennar á hinum ýmsu möguleikum sem til eru í lífinu veita manni andagift.
Er Mein Kampf til í íslenskri þíðingu?
Mig minni að ég hafi lesið það í Íslenskir nasistar eftir Illuga Jökuls að hún hefði verið þýdd á sínum tíma af einhverjum úr innsta hring þjóðernisflokksins. Þori þó ekki að sverja það. En hún er alltént ekki svona á almenningsbókasöfnum og ég efast umk að til sé "opinber" þyðing sem væri ini í íslenskri bókaskrá. Ef til er einhver þýðing væru það helst fornbókasalar sem gætu vitað um það.
Auðvitað áttu að lesa Furstann eftir Machiavelli, þ.e. ef þú ert ekki búinn að því.
Ég geri ráð fyrir allir háttsettir menn í Baggalútíu hafi lesið þá merku bók.
Nú sem léttara skemmtiefni er alltaf gott að renna aftur í gegnum Morgan Kane safnið. Það hefur líka fallegan móralskan boðskap
Auðvitað hef ég t.d. lesið Machiavelli og einnig hina stórkostlegu The Art of War eftir Sun Tzu.
Ég mæli reyndar með Mein Kampf eftir Adolf Hitler. Þetta er mjög hugljúf bók og fagrar lýsingar hennar á hinum ýmsu möguleikum sem til eru í lífinu veita manni andagift.
Er Mein Kampf til í íslenskri þíðingu?
Mein Kampf er best að lesa á frummálinu. Ekkert annað mál hefur jafn mikinn kraft þegar kemur að lýsingum af því tagi sem finnast í þeirri bók.