— GESTAPÓ —
TILMÆLI - Þjóðargersemin Baggalútur.
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Urmull_Ergis 6/1/04 04:14

-Eftir örlitla netrannsókn, komst ég að því að ódauðlegar hugrenningar baggalúta eru vistaðar á þjóni sem staðsettur er í kartöflugarðinum hjá Bush. Ætli Enter viti þetta?
-Mér er næst að halda að mikilvægara sé að fá baggalút heim en handritin, þau nennir hvort eð er enginn að lesa.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dr Zoidberg 6/1/04 10:05

Er ekki rétt að setja stöfnun Árna Magnússonar í málið.

‹Baggalút heim!›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/1/04 12:12

Sé þetta nauðsynlegt ætti í nafni byggðastefnu e.t.v frekar að stofna nýja stofnun, Baggalútsstofnun, er aðsetur hefði í t.d. Möðrudal, Hveravöllum eða Flatey á Breiðafirði. Hlutverki hennar yrði best lýst með orðunum "Baggalút heim". Síðan mætti í samræmi við nýjustu tísku stofna aðra stofnun, "Baggalútsstofnunareftirlitsstofnun", er annaðist eftirlit með starfsemi Baggalútsstofnunar. Mjög mikilvægt er að staðsetja þá stofnun sem allra lengst frá Baggalútsstofnun.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 6/1/04 15:45

Baggalútur er vistaður í Ameríku af öryggisástæðum - Færeyingar vita ekki enn af þeirri heimsálfu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 7/1/04 10:07

hlewagastiR mælti:

Dr Zoidberg mælti:

Er ekki rétt að setja stöfnun Árna Magnússonar í málið.

‹Baggalút heim!›

Ég hef rökstuddan grun um að stofnun Á.M. sé þegar á kafi í málinu.

Ég hef grun um að Stofnun Á. M. sé þegar í kaffi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/1/04 10:13

Mosa frænka mælti:

Ég hef grun um að Stofnun Á. M. sé þegar í kaffi.

Sem styður það sem vér sögðum um að stofna nýja stofnun til að annast þetta þar eð skv. þessu er stofnun ÁM eigi að gera mikið af viti (nema kaffidrykkja flokkist undir slíkt).

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Urmull_Ergis 7/1/04 17:00

-Mér er til efs að þeim menningarverðmætum sem verða til hér á Baggalút sé borgið í handfarangri Bush. -Það er vel að frændur okkar í þokunni viti ekki af amríku. -Helst vildi ég ekki vita af henni heldur. Ég gruna amríkana um að reyna að selja baggalút til þess að ná upp genginu á dollaranum. -Ef það bara spyrðist að þessi verðmæti lægju í amríku dyggði það til að snarhækka gengið á annars handónýtum dollar.
-Hinsvegar er náttúrulega hætta á því að amríkanar slitu stjórnmálasambandi við Íslendinga ef baggalútur yrði færður þaðan. Svo það er að mörgu að hyggja.

» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: