Bítill og Svarthöfði biðu hvor við sinn símann eftir hringingu frá
Spesa, þar sem þeir vildu fá það staðfest frá honum hversu langur þriðji hluti (m)ætti að vera þar sem þeir voru að fara í hárgreiðslu og strípur.
En þá var gert (síma)at í þeim af Sprella karlinum og þeir misstu af því mikilvæga símtali.
Ályktuðu þeir þar af leiðandi sem svo að þriðji hlutinn mætti vera óendanlega langur.
Hann bað þá að hitta sig í dimmasta húsasundi Reykjavíkur til að ræða viðskiptin enn frekar.
Læknirinn greindi þá sem ofgáfaða og sendi þá í meðferð til...
hófst þegar í stað handa við að afgáfa þá og notaði til þess rúmlega 10000 biblíur
og 500 lítra af rauðvíni sem hann sagði að væri: "Hikkk Líkammiii Kr.. hikk kkrrstss, lífsins brauð". En í sömu mund og Gunnar ætlaði að skíra þau í Kópavogslauginni steig af himnum Gabríel erkiengill, heilög Jóhanna af Örk og Sankti Klásus og heill herskari engla var með þeim og þeir sungu:
"Þér skuluð eigi áfengis neyta heldur áfengi neita".
Og af himnum heyrðist himneskur lúðraþytur og fuglarnir sungu "Dýrð sé Guðsa í upphæðum en friður á jörðu" og öll dýr merkurinnar og gresjunnar sungu Guði lofgjörð nema
Emúarnir, því þeir trúðu ekki á Guð og sögðu þetta eina stóra sjónhverfingu.
Þessu reiddist Guð og ætlaði að sína fram á að ekki væri um sjónhverfingu að ræða, en þá vildi svo óheppilega til að
eldingar þær sem hann annars laust í þá er kölluðu yfir sig reiði guðs voru búnar, enda nýbúinn að vera ársfundur Samfylkingarinnar. Greip hann þá til þess ráðs að henda snjóboltum í emúana en ekki vildi betur til en
að Elvis birtist og þetta líka sótillur. "hvern andskotann ert þú að gera hérna Drottinn? Var ekki ákveðið á síðasta fundi að ÉG ætti að sjá um málin hérna ekki ÞÚ. Til hvers erum við eiginlega að halda þessa fundi?" Guð opnaði munnin og