Það er lesin staða að það hefði snarbætt möguleika Ragnars H. Hall hrl á að verða dómari í hæstarétti hefði hann flaggað því að hann er þríburabróðir Arsenio Hall og Sigga Hall!!!
Að ekki sé talað um þá staðreynd að langafi þeirra allra var þjóðskáldið þrepvillta Jónas Hall.
Svo við gleymum ekki Bo Hall sem kom þarna inn á milli einhverstaðar.
Lítið hefur farið fyrir þeirri staðreynd í fjölmiðlum að George W. Bush forseti Bandaríkjanna, Kate Bush söngkona, bluegrass músíkantnn Sam Bush og Jeb Bush ríkisstjóri Flórída eru systkin. Svo skemmtilega vill til að faðir þeirra George H.W. Bush er fyrrverandi forseti Bandaríkjanna
Svo er það auðvitað á allra vitorði að körfuboltamaðurinn Michael Jordan, Eddie Jordan eigandi samnefnds Formúlu 1 liðs og glamúrgellan Jordan eru börn tannburstaframleiðandans Hr. Jordan. Faðirinn er einmitt ættaður frá Jórdaníu
Svo er það auðvitað á allra vitorði að körfuboltamaðurinn Michael Jordan, Eddie Jordan eigandi samnefnds Formúlu 1 liðs og glamúrgellan Jordan eru börn tannburstaframleiðandans Hr. Jordan. Faðirinn er einmitt ættaður frá Jórdaníu
Gleymu ekki að Eddie Jordan er einnig stjórnandi hjá körfuknattleiksliði Washington, en þeir Eddie og Eddie munu vera síamstvíburar
Svo má geta þess að klámmyndadrottningin Jenna Jameson er mamma írska viskísins Jameson.
-Svo má nefna hérna í framhjáhlaupi að Tom Jones, er bróðir Lalla Jones hins láshaga. En Grace Jones er einmitt systir þeirra, sammæðra.
Þeir eru ekki margir sem vita að Diego Armando Maradonna er Íslendingur og hálfbróðir Steingríms Hermannssonar. Hann varð uppvís um fíkniefnasmygl aðeins 5 ára að aldri þegar hann reyndi að komast gegnum tollinn á Keflavíkurflugvelli útúrdópaður og hélt að tollvörðurinn væri kengúra. Aldrei varð réttað í málinu þar sem hann lagði strax á flótta og hljóp út á Breiðafjörð í örvæntingu. Hann rak á land í Argentínu nokkrum vikum síðar. Hann fullyrðir að hafmeyja hafi borið hann á bakinu alla þessa leið og haldið í honum lífi, og þetta hafði slík áhrif á hann að hann tók upp ættarnafnið Hafmeyja. Ekki leið þó á löngu áður en hann hafði aðlagast argentísku samfélagi og þjálfað upp prýðis knattspyrnuhæfileika, en sá fljótt að það Dagur Hermannsson Hafmeyja væri ómögulegt nafn á knattspyrnuhetju. Hann hefur síðan þá gengist við spænskri þýðingu á nafni sínu.
Valgerður Sverrisdóttir á Lómatjörn er náttúrulega dóttir Sverris Hermannssonar sem var bróðir Steingríms Hermannssonar en þeir eru lausaleikskróar undan erlendum hermanni komnir. Sennilega norskum, annars hefðu þeir seint orðið ráðherrar.
Sighvatur Björgvinsson er sonur Björgvins G. Sigurðarsonar sem er sennilega sonur Sigurðar Kára ættlausa og áður hefur verið nefndur.
Jónas Jónasson, útvarpsmaður á rás 1 á líka allstóra ætt. Þar á meðal er bróðir hans Teitur Jónasson að ég tali nú ekki um fréttamanninn Kára Jónasson sem á sama pabba. Þeir eiga líka systur sem heitir Berglind Björk Jónasdóttir og leikkonan geðþekka Jóhanna Jónas sem býr erlendis er í raun Jónasdóttir.
Palli mágur, eða Paul McCartney er eins og svo margir aðrir af íslensku bergi brotinn. Langafi hans var enginn annar en Jóhann Magnússon úr Kartney á Breiðafirði en hann flutti til Írlands á unga aldri. Þar tók hann upp ættarnafnið McCartney sem þýðir sonur Kartneyjar. Þetta hefur reyndar valdið misskilningi á meðal fræðimanna sem hafa ályktað að móðir Jóhanns hafi heitið Kartney en það er bull og vitleysa.
Ég þekki Ríngó Starr. Við erum alltaf að gera símaöt saman!
Ég þekki Ríngó Starr. Við erum alltaf að gera símaöt saman!
Á fullum verðum, væntanlega.
Ég þekki Ríngó Starr. Við erum alltaf að gera símaöt saman!
Á fullum verðum, væntanlega.
Á fullum næturvörðum, svona yfirleitt. Kemur fyrir að maður slysast til þess að hringja í hórur, en það verður bara að hafa sig.
Eins og margir muna þá giftist Neil Young konu morðingja síns, á meðan bróðir hans Paul Youngdrap morðingja eiginkonu sinnar með hnífi. Hann eignaðist son Will Young sem er með moðsýki og fékk hjálp frá afa sínum Don Young sem býr í Alaska, hann reyndi að stofna hljómsveitina Young Boys en hún var lögð í eyði.
Eins og margir muna þá giftist Neil Young konu morðingja síns, á meðan bróðir hans Paul Youngdrap morðingja eiginkonu sinnar með hnífi. Hann eignaðist son Will Young sem er með moðsýki og fékk hjálp frá afa sínum Don Young sem býr í Alaska, hann reyndi að stofna hljómsveitina Young Boys en hún var lögð í eyði.
Ekki nóg með það. Allt þetta fólk rekur ættir sínar til Íslendingsins ástsæla, Kolbeins Unga.
Mamma kolbeins var kölluð ungamamma
Obbobbobb segi ég nú bara eins og Guðni. Skamm á mig.
En hér er ein vangavelta: Francis Scott Key sem samd lagið (eða textann) við þjóðsöng bandaríkjanna og Sveinn Skotti flækingur og afbrotamaður á Íslandi voru börn skoska skáldsins Sir Walter Scott. Scottie Pippen mun vera afkomandi þeirra.
Nú skal til sögunnar nefna þau hjónin Morgan Freeman og Liberty Belle. Systir Liberty er Memphis Belle sem giftist Cincinatti Kid og verður þeirra saga etv. rakin síðar
Hjónin Morgan og Liberty eiga saman spretthlauparann Cathy Freeman og hljómlistarmanninn góðkunna Jacob Freeman sem dvalist hefur lengi hérlendis og íslenkað nafn sitt.
Grunsemdir eru uppi um að vinur okkar Frelsishetjan sé skyldur þessu mæta fólki[/b]
Leikarinn og rithöfundurinn sérvitri, Stephen Fry er íslenskur í föðurætt og alnafni föður síns en sá heitir Stebbi Steik og er togarasjómaður frá Akureyri.