Afsakið buliið í mér... ég horfi allt of mikið á ameríska lágmenningu.
En er þetta nokkuð úr The Fisher King?
Neibb.
Bara svona til leiðrétta enn frekar allan hugsanlegan misskilning að þá er það sem á ensku heitir 80's í raun níundi áratugur 20. aldar.
Núna er t.d. "The Firsties" eða fyrsti áratugur 21. aldarinnar og siðan koll af kolli, tímabilið 2010-2020 er þá annar áratugurinn osfrv. annað virkar bara ruglandi, en eru ekki allir bara hressir? Íslendingar með silfrið og svona...
Bara til að fyrirbyggja að allur misskilningur sé leiðréttur, þá er algengt að tala um Noughties/naughties, en orðið Firsties er bull (af orðinu Nought fyrir núll). Næstu áratugir eru svo tens, twenties, thirties o.s.frv. Tímabilin eru frá 20x0-20x9.
En svo maður giski líka: Good morning Vietnam?
OK, þetta er úr fyrstu mynd ákveðins þríeykis.
Marx-bræður þá?
Reyndar ekki, en umrætt þríeyki sótti einmitt innblástur til þeirra sprelligosa.
OK, smá hint.
Þríeykið gerði þætti um löggæslumann. Þættir þeir hafa öðlast s.k. "költ"status.
Neibb. Hint #2. Lögreglumaðurinn umræddi (sem er ekki í myndinni sem um er rætt) hét Frank.
Drebin að eftirnafni? Ef svo er er ég búinn að gúgla þetta, þ.e. hver fyrsta mynd viðkomandi þríeykis er, en hef ekki séð umrædda mynd.
Jæja, óþarfi að draga þetta lengur. Þetta var úr myndinni Kentucky Fried Movie.
Rétturinn er opinn, eins og sagt er.
Maður hefði nú mátt sinna þessum leik betur.
En o jæja - reynum að blása lífi í þetta.
Ég vonast til að þessu verði tiltölulega fljótt svarað rétt.
Ég þarf ekki að segja ykkur að ástandið er slæmt. Allir vita að ástandið er slæmt. Það er kreppa. Allir eru atvinnulausir eða hræddir um að missa vinnuna. Dollarinn er fimm senta virði, bankar eru að fara á hausinn, búðareigendur geyma byssur undir afgreiðsluborðinu ...
2008: The Movie.
Gæti vel passað, já - en myndin er ögn eldri.
Eða framhaldið: The Seðlabanki Strikes Again.