Ég hef gert undraverða uppgötvun á sviði skeggfræði. Með því að blanda hreinu kóbalti í vökvaformi við hvaða raksápu sem er virðist vera hægt að öðlast mikinn og hraðann skeggvöxt eftir einungis einn rakstur. Aukaverkanir eru fáar sem engar á meðan þú ert sáttur við að vera með blátt skegg sem kemur sér einmitt frábærlega fyrir menn eins og mig.
Blátt skegg og mikið ?! Er þetta eitthvað skylt blú-blú veiki ?? klórar sér í höfðinu
Kóbalt er hollt og gott fæðubótarefni sem mun seint verða hægt að innbyrða of mikið af hvað þá ef það er notað sem raksápa.
Kunnugt er oss um hollustu kóbalts og vorum vér eigi að gefa í skyn að blú-blú veiki væri skaðleg heldur þvert á móti og því e.t.v. rangt að tala um "veiki".
ég hélt að maður væri að raka sig til þess að losna við skeggið...
Er últrakóbalt háreyðingarkrem eða raksápa?
Hvorugt, það er margfalt merkilegra fyrirbrigði.
Sko.. þú rakar af þér venjulega leiðinlega skeggið og þá vex þetta þykka og fína bláa skegg í staðinn.
nota ég kóbaltið þá sem raksápu eða aftershave?
Tjahh.. ég notaði það sem raksápu en það er góð hugmynd þetta með aftershavið. Það þyrfti að prófa það.
ég vona að þú hafir brúkað hanska er þú barst á þig kóbalt raksápuna.
Annars er þetta hin besta vara hugsa ég, nú þarf bara að markaðssetja þetta, hafðirðu hugsað þér að selja þína eigin kóbalt raksápu eða að markaðssetja nokkurskonar raksápu-bætiefni?
"Kóbalt - for men" hljómar strax ágætlega
Já... ég er nú eiginlega hættur með þessa kóbaltraksápu hugmynd eftir að hafa prófað nýja kóbalthjálminn minn.
Jæja, þér er þá vonandi sama um að ég reyni að hagnast ofurlítið á hugmyndinn i þinni.
Ertu skegglaus og óviss í karlmennsku þinni? Prófaðu "Kóbalt - for men" og upplifðu þig loksins sem alvöru karlmann!
Verði þér að góðu... ég ætla að fara og vinna í fólskumálaráðuneytismálum með nýja kóbalthjálminn minn. Flott skegg þarna... lofar góðu.
ég vona að þú hafir brúkað hanska er þú barst á þig kóbalt raksápuna.
Annars er þetta hin besta vara hugsa ég, nú þarf bara að markaðssetja þetta, hafðirðu hugsað þér að selja þína eigin kóbalt raksápu eða að markaðssetja nokkurskonar raksápu-bætiefni?
"Kóbalt - for men" hljómar strax ágætlega
Er í lagi að borða raksápuna??
skellir upp úr nau hvur djöfullinn, ef þetta er ekki Feiti Einbúinn þarna með bláa skeggið!