Núna rétt áðan þá var ég afpólaði ég segulsviðið á einfylkinu sem ég nota til þess að framleiða kóbalt, ljóseindagagnabreiddin tók kipp og olli ósamfellu í lofttæminu sem ég nota til einangrunar, ósamfellan hafði þau áhrif á kóbaltið að það fasaskiptist og bjó til eithvað það furðulegasta efni sem ég hef séð: frekknótt kóbalt.
Nú gildir að hafa hröð handök Rauðbjörn, annars stefnir í óefni. Taktu freknótta kóbaltið, láttu það í nítraðan þungvetnissegulbala og skjóttu nifteindum í gegnum balann með geislavirkum segulmagnsstöngum. Þá ættir þú að geta heft hröðunarvektór ryðtæringarmyndunar kóbaltsins. Er þú hefur gert það, skaltu taka kóbaltið og leggja í blýeinangrunartank, sem skal vera fullur af eldheitu kóbalti í fljótandi formi og láta klumpinn bráðna til þess að skaðinn dreifist innanum kóbaltsuðuna. Er þú hefur kælt fljótandi kóbaltið og það hefur tekið fast form, er blýkassinn og kóbaltið í honum ennþá hættulegt út af vægri nanógeislavirki en í það minnsta er búið að koma í veg fyrir kvarkfasasundrungu víddasamskeytanna en ef sú sundrung á sér stað mun alltumlykjandi himingeimurinn lenda í krónísku tortímingarástandi um aldir alda.
Þú verður að fara varlega þegar þú ert að leika þér svona.
-Þetta er sama aðferð og ég nota við að sjóða eggin mín á morgnanna.
eltir plebban þráð eftir þráð
Passar að Leibbi fari sér ekki að voða í þessum eltingaleik og býður honum Marlboro...
Stingur leibba af
Djöfull ertu lélegur í þessum leik. Jahérna hér.
Þessi leikur er lélegur.
Einkar
tekur upp sverð og drepur alla í 100m radíus af engri ástæðu og hlær brjálæðislegum hlátri
Prísar sig sælan að hafa verið 101 metra frá
Sjálfur gat hann verið heppinn að ég var ekki nálægt.
Rænir líkin og hleypur í burtu en missir lítinn disk
tekur upp diskinn og hleypur heim í keisarahöllina
Nú er diskurinn MINN! hohohohoho
Les af disknum Hver er þessi Leoncie eiginlega? klórar sér í höfðinu
Uhumm. Leoncie er eiginlega á mínum vegum. Smá tilraun sem fór úrskeiðis.
kemur hlaupandi öskrandi út úr höllinni STÖÐVIÐ ÞJÁNINGUNA! AAAAAAAAAA!
Uhumm. Leoncie er eiginlega á mínum vegum. Smá tilraun sem fór úrskeiðis.
Ó, Goggnum hefur alltaf fundist Leoncie vera eðaltónlistarkona. Dillar sér við "Come on, Viktor"
Og velkominn aftur, faðir!