Hann Vladimir ætti að geta bjargað þessu í hvelli, hann hefur yfirumsjón með ráðherra- og embættismannalistanum.
Umsóknir til opinberra embætta á vegum Baggalútíu skulu lagðar fram hér á þessum þræði.
Ég vil setja fram umsókn á opinberum vegum Baggalútíu þar sem þessi þráður er helst til þess hentugastur.
Það er einmitt málið, maður fyllir þetta ekkert út! Það fer fram persónuleikamat!
Það er rétt, ég er bæði trúarbragða- og fjármálaráðherra auk þess að vera biskup.
Ég legg til að Ísdrottningin fái embætti hálendismálaráðherra með jökla sem sérgrein. Auk þess gæti hún gegnt embætti söngmálastjóra því að í fjallaskálum þarf einhver að geta stýrt fjöldasöng.
Ég gæti aðstoðað hana við jöklarannsóknir en það gæti skeð að ég þyrfti að þiggja hjá henni drátt við og við enda hefur mér skilist á skrifum hennar að hún sé með stærra undir sér en ég. Þá meina ég að hún ekur um á 38 tommum en ég bara á 35. En svona tal skilur bara jeppafólk, aðrir halda eflaust að nú sé biskupinn að tapa sér í einhverjum dónaskap og perrahætti en svo er ekki gott fólk.
Þarf ég að sækja formlega um embætti hálendismálaráðherra með jökla sem sérgrein, ásamt embætti söngmálastjóra á fjöllum?
Ef svo er hvar sæki ég um?
lítur í kring um sig í leit að umsóknareyðublöðum
Sem umhverfismálaráðherra þá mælist ég til að þetta heyri undir mitt ráðuneyti og verði Ísdrottningin gerð að hálendismálastjóra með jökla sem sérgrein.
Á söngnum tek ég hins vegar ekki ábyrgð. Ætti það ekki að heyra undir smekksráðuneytið Júlía?
Eða jafnvel að skipa einhvern skemmtanamálaráðherra og skella þessu þar undir?
Ég verð að viðurkenna að ég get alveg þegið smá hjálp.
Allar þessar mútur vegna virkjanaframkvæmda eru að verða mér ofviða.
Ég er líka ennþá að berjast við aumingjana sem vilja friða Lemúrabyggðir hjá Kröflu.
Mér líst vel á hugmyndir Nornar. Með hálendismálastjóra myndast gott rúm til hagræðingar á spillingarmálum hálendisins. Ég sé fram á góð samlegðaráhrif og nokkra aukningu aðrsemi.
Get ég ekki sótt um að vera listamálaráðherra eða e-ð?
Allar þessar tillögur líst oss vel á. Annars er spurning hvort eigi skuli stíga skrefið til fulls og gera Ísdrottninguna að skemmtanastjóra (eða jafnvel skemmtanaráðherra) Baggalútíu því óralangt er síðan Sprellikarlinn sást.
Heyrðu Vlad, geturðu nokkuð skellt þessum lista inn?
Æðstistrumpur: Smábaggi
Æðstastrympa: Ísdrottningin
- Gáfnastrumpur: Ég sjálfur
- Gleraugnastrumpur: Ívar Sívertsen
- Apastrumpur: bauv
- Hirðstrumpur: Rokkmús
- Almúgastrumpur: Æðstistrumpur
Allt í lagi.
Æðstistrumpur: Smábaggi
Æðstastrympa: Ísdrottningin
- Gáfnastrumpur: Ég sjálfur
- Gleraugnastrumpur: Ívar Sívertsen
- Apastrumpur: bauv
- Hirðstrumpur: Rokkmús
- Almúgastrumpur: Æðstistrumpur
- Rímnastrumpur: Skabbi Skrumari
Er til eitthvað sem heitir Tígrisstrumpur?
Hmm.. það er til apastrumpur.. hví ekki.
Æðstistrumpur: Smábaggi
Æðstastrympa: Ísdrottningin
- Gáfnastrumpur: Ég sjálfur
- Gleraugnastrumpur: Ívar Sívertsen
- Apastrumpur: bauv
- Hirðstrumpur: Rokkmús
- Almúgastrumpur: Æðstistrumpur
- Rímnastrumpur: Skabbi Skrumari
- Tígrisstrumpur: Tigra
Ég skal vera Brjóstastrumpur Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Hvað með að lagfæra það aðeins og veita henni embættið Barmastrympa?