Ég hef heyrt að ævisaga hins merka fræðimanns Helga Pjeturs sé komin út, hefur einhver hér á spjallborðinu lesið hana og er þetta eigulegur gripur?
var hann ekki einhver bölvaður kynvillingur?
var hann ekki einhver bölvaður kynvillingur?
Þá er sennilega ekki rætt um þann sem gerði Gerði grikk þarna um sumarið.
neeeei, en þetta passar hingað inn ef þetta er kóbaltplata
Var hann eigi Neptúnískur ?
En í tilefni af því að einhver nefndi kóbaltplötur (miklu dýrmætari en gullplötur) hér fyrir ofan þá vantar oss slíkt. Það hefur nefnilega sýnt sig að eliptonið er í meira lagi frekt á kóbalt sem það notar m.a. sem orkugjafa.
Veitum Bubba Kóbaltplötuna
Íslensku tónlistarverðlaunin yrðu miklu meira spennandi
Það er ánægjulegt að menn skuli taka sér í huga að hugsa um Nýalinn, en takmörk eru fyrir því hverju er ansað. Einhver í þessum hóp kveður ekki tíma eyðandi í lestur bókar um Dr. Helga. Ekki er hægt að áfellast manninn fyrir þetta álit, en álitið er ekki sanngjarnt ef hann hefur ekki lesið stafkrók í bókinni. Þetta viðhorf ¨mér finnst¨ er ágætt útaf fyrir sig en lýsir mikilli andanns fátækt. Öll þesi tilsvör sem eru á þessum dálkum er ég hef skoðað og langað að svara eru ekki fýsileg til afskipta. Sum mál eru mönnum hjartfólgnari til umfjöllunar og hugsunar en önnur og vonandi er ykkur eins innanbrjóst að minnsta kosti geri ég ráð fyrir því.
Gaman verður að hafa fræða stundir með ykkur um kenningar Dr. Helga og mjög sennilegt að hinir greindustu ykkar líkaði sá heimsskilningur er þar er settur fram, en hinum greindar minni er þá nokkur vorkunn að geta ekki lyft huga upp til æðstu verundar. Hlakka til að mæta ykkur á málefna grundvelli.
Brestur í óstöðvandi grát því miður var tekið sem stóð hér fyir ofan mig það er fúlt að þið vesalingarninir mínir lesið ekki nýjal......
Ágæti félagi.
þú biður kurteislega um að einhver svari Nýal til varnar.
Það er nú það. Hverju er að svara, ég get því miður ekki lagt það á þig og aðra er hér hafa látið ljós sitt skyna að vera íþyngja þennan dálk með varnarræðu um ágæti Nýals. Sérstaklega þegar ekki liggur fyrir að nokkur sá er leggur til þessara mála hér, hefur sennilega ekki lesið Nýal. Ef svo er að einhver hafi af fróðleiksfíkn lesið hann yfir tek ég orð mín til baka og býst þá við að viðkomandi mæti mér á málefnalegum grunni. En ég frábýð mér alla kerskni með þetta málefni sem Nýallinn birtir og fyrir þó nokkra einstaklinga innlenda sem útlenda er þesi heimsfræði og náttúruskilningur lífsviðhorf. með þökk fyrir góðar undirtektir. NISIR.
Segðu mér Atli, fróðastur manna, hver er boðskapur Nýalsins? Ég hef í hyggju að kynna mér málefnið, en hef bara ekki komist í það enn, það er skömm frá að segja. En þú ert einmitt maðurinn til að opna augu okkar fávísra baggalúta, ekki væri verra ef þú gæfir okkur nokkrar mínútur af þínum tíma og segðir okkur frá þínum kynnum af Nýalnum, því greinilegt er að það liggur hjarta þínu nærri.
Kannski andstæðan við gamall ?
gaman að þessu, ég er Nýjalmenni... eða það segir Dorrit
Er engin hérna til að verja Nýalinn???
Þessari spurningu var svarað í síðustu viku að ég held, en þurrkaðist út um leið og hendi sleppti. Ef þetta tekst, er hugsanlegt að meira eftir renni.