Hafið þið orðið varir við einhver merki um að ný heimsskipan sé á næsta leiti? T.d. óvenju mikið um svartklædda menn í miðbænum?
Eru geimbúarnir að undirbúa innrás enn eina ferðina?
Horfir flóttalega til himins
Það kæmi mér ekki á óvart ef Færeyingar væru með eitthvað stórt í bígerð.
Ég reikna með rokna litlum breytingum uns ég klæði mig og kem mér út úr húsi í árlega skoðunarferð til að fylgjast með þeim breytingum sem örðið hafa að undan förnu alveg síðan ég fór síðast út.
Já, skelltu þér endilega út og fáðu þér flatböku...
Samkvæmt Júpíter eru allir betri flatbökustaðir með tilboð í gangi.
líka þeir Grænlesku með Grænlensku leikurunum í Grænlensku auglýsingum Grænlenskra greiðasalna er veita Grænlenskarflatbökur?????
Mér þætti gaman ef öll lönd tækju upp á eins skemmtilegri nafnaflóru og við Íslendingar. t.d "grísahreppur" "saurbær" "apavatn"
Hákon stendur það til??????????????????????????????????????????
Hefur nokkur séð spurningamerkin mín. Ég er viss um að ég átti nokkur til vara hérna í kistlinum undir lausu fjölinni, en þar eru bara nokkur upphrópunarmerki og tvípunktur eftir.
Mér þætti gaman ef öll lönd tækju upp á eins skemmtilegri nafnaflóru og við Íslendingar. t.d "grísahreppur" "saurbær" "apavatn"
Þau eru sum hver skemmtileg í henni Danmörku...t.d. Hundested
Að ógleymdu Himmelbjerget.
jahá, Himmelbjerget stendur svo sannarlega undir nafni!
Mér finnst samt einhvernveginn ekki vera sama góða stílbragðið í dönsku nöfnunum.
Enda á ekki að bragða á stílum, þeir fara í óæðri endann...
úps..
ef þetta var mikið magn hákon, talaðu þá við Zoidberg, hann reddar þér