Væri nokkuð hægt að raða þráðunum eftir því hvenær síðasta innlegg var sett in frekar en eftir því hvenær þráðurinn var stofnaður? Þegar aktívir, skemmtilegir þræðir detta út af fyrstu síðunni vegna flóðs ómerkilegari þráða deyja þeir óverðskulduðum dauðdaga. Betra að halda þeim aktívu fremst og láta hina deyja drottni sínum.
Vissulega, en það virkar aðeins ef innskráning tekst í fyrstu tilraun. Því miður virðist innskráningarkóðinn vera eitthvað pöddóttur, og þarf að endurtaka innskráninguna. Og þá miðast allar upplýsingar um hvað sé 'nýtt' við hvað hefur gerst síðan fyrri skráningartilraunin var gerð. Sumsé, ekkert.
Vissulega er tillaga þín Úrsus hugmyndafræðilega haldgóð en því miður vill henni fatast flugið í praxís. Ég hef nefnilega slæma reynslu af þess konar kerfi sem þú vilt koma á. Ósvífnir prakkarar og apakettir gera það oft að leik sínum að svara aldagömlum og þrælmygluðum þráðum og halda þannig lífi í morknuðum umræðum sem þá drekkja þeim nýrri og ferskari.
Enda hygg ég að Spesi hafi nú þegar fyrir nokkru svarað svipaðri fyrirspurn með ekki óskyldum rökum og ég hef hér reifað.
Já eða var það kannski Enter. Þeir eru nú svipaðir til augnanna svosem.
Ég tel réttast að benda á þetta ykkur til fróðleiks.
Hvernig viðkemur Þetta málinu
Ég tel réttast að benda á þetta ykkur til fróðleiks.
Hvernig viðkemur Þetta málinu
Ert þú svona kjáni sem kann ekki að ýta á tengla?
kannski kjáni en ég þó ekki Hálfviti Slær á lær sér og hlær hrossahlátri
Eða Háltitvi...sem er jafnvel verra en kvartviti...hlær með Frelsishetjunni
þykist hafa sagt brandara og hlær hátt
Ringlaður og skilur eigi alveg hvað er um að vera, sér í lagi ekki orðið "Háltitvi" en hlær engu að síður
Þetta hlýtur að vera fyndið
Stekkur hæð sína en hlær ekki jafn hátt
Já því þá ertu orðin örviti.Það hlýtur samt að vera verra að vera örvititvi.