Finnst eigi fleirum en oss það galli að eigi sé hægt að birta myndir í skeytum hér án þess að þær séu til einhversstaðar á sk. veraldarvef ? Nú kynnum vér að hafa undir höndum stórmerkar myndir er sanna tilvist drauga og gætum vér sett þær á vefþjóna einhversstaðar úti í hinum stóra heimi en aðilum þeim er slíkt reka er lítt treystandi. Það myndi því kæta oss mjög ef með innleggi á borð við þetta væri unnt að "uploada" myndum.
Já, góð hugmynd. Svo skulum við skreppa í jólafrí á meðan miðlarinn okkar leggst á hliðina vegna of lítils diskpláss.