Hrekkir mig og hrekkir þig
hlewagastiR.
-ar. þó stundar aldrey Lyg-
(Við erum fastir.)
Fastir eru fyrir tveir
-furðugenin ríkja-
Eðalpóar eru þeir,
ekki vefinn svíkja.
(Þetta er nú ekki sérlega góður hortittur)
Svíkjast um að svara mér
svindlarar í Nígeríu.
Í bankann minn því brátt ég fer
(best finnst æ að fá mér kríu).
Kría heitir kvikindi
sem kvelur alla
(kvikindi rímar við kviksyndi)
og kórar skalla.
Skallaörninn indjánarnir dáðu
og hans fjaðrir notuðu sem skraut.
(Í ómennsku ég ætti að fá mér gráðu.)
Nú útrýmingar- fuglinn er á -braut.
Braut ég og bramlaði,
bótunum hamlaði,
í syndunum svamlaði
(sól gyllir vað)
karlanginn kvað.
Kvaðirnar á kvæði þessu
kannski eru hamlandi.
Að endingu fer allt í klessu.
(Ertu í sundlaug damlandi?)
Damland okkar orðið nú
ónýtt jafnvel verra,
Held að þetta homma bú
henti bara perra.
Perrinn sökk í pyttinn sinn,
píslavrvætti þar mun líða.
Hér skal rita hortittinn:
í Hafnarfirði er rjómablíða!
Rjóma, Blíða, reyndi að fá
(rúmið mitt er bilað).
Sigga Vigga sagði þá
súkkulaðisnúð ég á.
Ég á lítinn, ljótan sið:
í lófa mér að reka við
(hinkrið aðeins, hér er bið)
og heisla þér svo. Afsakið!
Má limrast?
Afsakið HLÉ! er hlálegt stöff
líkt Hlégesti, en pínu röff,
(á það ber að líta)
hve létt er að skíta
í lófa sér og lúkka ekkert töff.
Töffarnir í teinóttu
tækin öflug þöndu.
(Ríðið þér á rauðskjóttu?)
Réðu fram úr vöndu.
Vöndu tel ég vænsta allra meyja
víst er heiður fyrir hana að deyja
(Nonni sig var mikið heiðursmenni)
mikið vil ég fá að giftast henni.
Hún er sæt og fögur frú
fjalladrottning okkar
Nú við skulum byggja brú
svo blotni ekki sokkar.
Sokkar okkar sitja á
sigggrónustu höndunum.
Þokki rokkar, rekum þá
ríku burt af löndunum.
Hér eru hortittir í hverri línu, en til að skilja þær tvær efstu þarf að lesa bókina: Tumi klæðir sig eftir sænska rithöfundinnGunillu Wolde, í íslensku þýðingunni er reyndar ekki talað um sokka, heldur vettlinga sem sitja ýmist á höndum eða fótum.
Tumabækur allar á
og Emmu líka.
Þó vil ég ekki fleiri fá
(fliss-fliss: píka!)
[Píkustykkið passar þér.)
Prestar vinna hérna góð störf:
Syngja burtu Satans her.
Sálgæzla mér virðist mjög þörf.