Þéringar nú þykja leim,
en þúingar í tísku.
Dágott er að draga seim,
(dey ég brátt úr nísku).
Níska Gunna og níski Jón
niskpúkar eru og hjón
(einu sinni átti ég ljón)
að umgangast þau, það er tjón.
Tjón á kaskótryggðum bíl þig truflar lítið
ef í skilum iðgjöld voru.
(Áttu núna Fólksvagnsboru?)
Fólksvagnsboran frábær er
fuðri hún upp dísil.
Blanda ál og bræði hér
og bæti við það kísil.
Kísildalur kemur víst með kostagripi.
Þar víst eflist tölvutækni.
(Telur þú þig vanta lækni?)
Læknir minn hér Vímus var
en vantar hann hér núna
Hann er eflaust hér og þar
og heldur sig við kúna.
Kúmenbrauð og kanilsnúð,
og kandísfrauð
(karfinn er með kalda húð)
og kaffibrauð.
Kaffibrauðið komst ég í sem keypti frúin.
Því eru vínarbrauðin búin.
(Bætir geðið Ásatrúin?)
Ásatrú er ógeðsleg
og andskotanum kær,
(fært er nú um Framnesveg)
fjandinn brýnir klær.
Klærnar brýnir kötturinn á klórupriki,
síðan heldur sínu striki.
(Sá ég bíla hverfa í ryki.)
Ryki safnar ríkisstjórn á rausnarboðin
þau er voru saman soðin
(af sætindum er vömbin troðin).
Troðslur þykja í körfunattleik kæta og fegra,
(fátt er rímum leiðinlegra)
láta menn það stunda negra.
Hungursneyð og „heilög“ stríð
heimsbyggðina skekja.
Bólusótt og barnaníð,
(í Borgarfirði er rekja).
Negrakossa næ ég í, og nokkra saman,
treð þeim inn í op að framan.
(Áttu nokkuð "Gagn og gaman"?)
Gaman er að ganga hér um grund og klungur
ef malpokinn er þéttur, þungur.
(Þórberg stundum æsti hungur.)
Hungursneyð og „heilög“ stríð
heimsbyggðina skekja.
Bólusótt og barnaníð,
(í Borgarfirði er rekja).
Rekja sporin reyndir hundar,
reynist flóttinn illa.
Allir náðust innan stundar.
(Upp skal vísu fylla.)
Afsakið aulaháttinn að rjúfa keðjuna og takk fyrir reddinguna Billi!
Fylliraftar fíla mest
fleiri pytlu en eina.
(Einu sinni átti ég hest,
ekki er því að leyna.)
Leyna náði' eg lengi minni lubbamennsku.
Það er hægt að kallað kænsku.
(Kynlíf það er sex á ensku.)
Ensku kann ég ansi vel,
en ennþá betur þekki
íslensku, sem eðal tel.
-ei má stunda hrekki-