Ekki beint björgulegt.
En þetta lítur nú út eins og það væri einmitt sjerlega skemmtilegt að halda árshátíð við svona súrrealískar aðstæður Ljómar upp.
Ekki beint björgulegt.
En þetta lítur nú út eins og það væri einmitt sjerlega skemmtilegt að halda árshátíð við svona súrrealískar aðstæður Ljómar upp.
Það er þó veruleg hætta á að drykkjuvandamál muni gera vart við sig þegar vökvar tolla ekki í glösum og svo eru kettirnir helíllir yfir því að hafa ekki fast undir fótum og ráðast á Færeyinginn í tíma og ótíma. Það er alllt orðiið kreisí.
Tökum Hvíta riddarann í mosó undir árshátíð, ég fór þangað um daginn og mér fannst sá staður alveg ágætur, svo er ég einmitt búin að taka í spaðann á eigandanum sem er ágætis gaur og það hlýtur að vera hægt að finna einhvern flöt á því.
Allt má nú kalla spaða. Hleypur í burtu á ofsahraða til að vera ekki laminn
Það sleppur að fara upp í Mosó. Neyðarþjónusta FÍB getur þá flutt mig heim ef allt um þrotnar.
Ætli það verði nokkuð að frétta fyrr en í febrúar?
Eruð þið að spá í loðnuvertíðina?
Ég neita að mæta á árshátíð ef hún verður í Mosó!
Ég gæti mætt í Hafnarfjörðin, svona til tilbreytingar.
Ég gæti mætt... það er eiginlega lykilatriði í þessu samhengi.
Ég get reyndar ekki mætt 22. - 25 nóvember en annars er ég bara nokkuð laus við... nema annað komi í ljós. JÁ OG EF ÁRSHÁTÍÐIN ER Í EINHVERJUM MOSAVÖXNUM MOSASKÍT!
Það var gott að heyra, Offari.
Þetta átti nú hvorkii að vera fjórfalt né árhátíðnin. Það er örugglega einhver hátíðni í ám í nágreni við mig. En ég var samt að gefa í skin að ég nenni ekkert að þvælast langt frá byggð á þessum árstíma.
Mætið þjer ekki bara fjórfaldir ? Þar eð allir gestirnir hjer eru Glúmur og Glúmur þar af leiðandi jafnframt allir gestirnir hjer nema þeir gestir sem stundum eru ekki Glúmur og Glúmur þar af leiðandi ekki alltaf þeir gestir sem stundum eru ekki Glúmur að undanskildum þeim sem aldrei eru Glúmur, þ.e. ritstjórninni, ætti það að vera einfalt í framkvæmd.
Ég mæti á árshátið ef ég kemst en vil ekki reyna að hafa áhrif á dagsetningu eins og klúðraðist svo skemmtilega síðast.
Er ekki búið að halda Árshátíð 2012. Mig minnir að ég hafi mætt í samkvæmi sem Maddaman hélt svo eftirminnilega, eða það held ég.