Komið nú með skemmtileg safavíxl og útúrsnúninga á nöfnum. Það er óþarfi að koma með upprunalegu útgáfuna en það gæti samt aukið á skemmtanagildið að vita stundum hversu langt stafavíxlið getur farið með nöfn eða orð. Ég skal byrja
Fræmundur Sóði (gamall og klassískur) - Sæmundur Fróði.
Hér er eitt orðtak í sarpinn
hneppir hrossið - hreppir hnossið
Ol og kolía (Kol og olía)
Iceland's greasy mountains (Greenland's icy mountains)
Afa og ammi (afi og amma)
Lalli og Haddi (Halli og Laddi)
Fífl er tengdamamma mín ( Tengdamamma mín er fífl)
Ég gæti verið að misskilja þennan leik, en vonandi að skilaboðin komist til skila.
Þrír klassískir:
1
Einu sinni var þrógarsköstur sem sat á límasínu. Þá kom mondi vaðurinn með baglahyssuna og skaut þrógarsköstinn. Það varð fennuspall í límasínunni og þrógarskösturinn datt niður í hotturolu sem var fyrir neðan. Það hafði rígmignt um nóttina svo það rann sprækjarlæna ofan í hotturoluna og þróarskösturinn drukknaði.
2
Ég ætla að fá eina peita hylsu með leiktum stauk, láum hrauk og lemúraði. Og eina kitla lók. (Gaman að nota í sjoppum).
3
Skunda á braut - brunda á skaut.
Skunda á brott - brunda á skott.
Já og svo var það hann Freymóður, sem oft var kallaður Meyfróður
Þá hafið þið líklega ekki heyrt Högga Bjalldórs syngja.
Svo eru það "Hljóðandi myndir með líffæraslætti - Lifandi myndir með hljóðfæraslætti"
Já... svo er náttúrulega frægasta mismæli í útvarpi og líka hjá forseta íslands... FLASA VOLADÓTTIR.
hérna er kannski öðruvísi stafavíxl sem auðvelt er að skilja
'Putér fór í sólaknn og lðræi srætðfærði, en knneairnn vrað svo allt í eniu vieukr og hnan dó'
Hafði vafið
Vafði hafið
fá meirihluta
má fleirihluta
kannske þetta virki betur
hmmm,
húsamús - músahús
brauðfætur - frauðbætur
bílfælni - fílbælni
símatími - tímasími
Davíð Ráðherra - Ravíð Dáðherra