Genabreytir jólatré og býr til trjátegundina Jólatré og fær á henni alheimseinkaleyfi
Hana, nú er ekki hægt að rífast um þetta meira!
Færir Offara eitt stórt Jólatré að gjöf
Hvað er í gangi? Ekki kjaftur búinn að droppa inn í þennan draugabæ Lýðnetsins síðan á útmánuðum
og svo farið þið á límingunum ef maður svarar ekki nonsens spurningum ykkar innan korters þegar þið loks mætið. Ég veit ekkert um tíundir enda er ég ekki aðventisti. Aukinheldur tilnefni ég orðið jólatrjáasala hér með sem afkáralegasta ofvöndunarorðskrípisafstyrmi síðari ára. Hver sá sem það notar ætti að fara á ýsnaveiðar og éta ræknasalat að loknu þotnaflugi.
(Virka ég nokkuð önugur í þessu innleggi? Neeeeeih. Þið ættuð þá bara að sjá raunheimakvikindi mitt.)
Öðru vísi mér áður brá, og hefur Gestapó-gestum farið aftur í málfræði og íslenzku síðan í öndverðu:
Jólatréssala er málvenja, líkt og Alþingi (enda á svipuðu verksviði).
Ægisíða er þolfalls-samtenging (ekki eignarfalls), líkt og t.d. Tollstjóri.
Tollstjórinn ! ! ,, er hann hér Stekkur hæð sína og svipast um flóttalega áður en hann læðist hljóðlega út af þræðinum
Er hlebbI ekkert að fara að svara? Blánar enn frekar...
Ætlar að draga andann fyrst að hlebbI hefur svarað, en kemst þá að að súg er dau
Ærsladraugast
Tikkamasala.
Er Tikkamasala í eintölum eða fleirtölum?
Nú, er hann fluttur? Klórar súg í höfuðpaurnum